Valsblaðið - 11.05.1972, Page 77

Valsblaðið - 11.05.1972, Page 77
VALSBLAÐIÐ 75 Hnllur Símonarson: Frœgur knattspyrnumaSur MÖRK. GULLIN MÖRK. NÆSTUM 300. SKORUÐ Á ÍSUÐUM VÖLL- UM BAKVIÐ JÁRNTJALDIÐ OG Á SÓLBÖKUÐUM VÖLLUM SUÐUR- AMERÍKU. SKORUÐ Á VOLDUGUM WEMBLE Y-LEIK V AN GINUM EÐA VIÐ GLÓÐINA Á HAMPDEN-LEIK- VANGINUM. MÖRK SKORUÐ ALLS STAÐAR I KNATTSPYRNUHEIM- INUM, SEM BERA TÖFRAMERKI BOBBY CHARLTON. Vissulega hafa verið meiri marka- kóngar til í langri sögu knattspyrn- unnar, þó þeir séu ekki margir. En það er ekki til knattspyrnumaður í dag, sem skorað hefur jafn mikið af sérstæðum glæsimörkum og Bobby. Til þess að sanna mál okkar verður hér á eftir minnzt á nokkur þeirra — hin frábæru Charlton-mörk. Það er ekki hægt að birta myndir af mörk- um — þær eru jafn sjaldgæfar og verðlaunapeningar í bikarkeppni. En það er ekki ástæða til að kenna blaða- ljósmyndurum um það. Þrumumörk Charltons eru oftast komin í mark áður en þeir geta lyft ljósmyndavél- inni. Og þó hafa þeir af langri reynslu lyktað marktækifæri löngu áður en sumir varnarmenn. Markverðir frá Argentínu til Ars- enal — frá Moskvu til Manchester City skjálfa eins og ekki er að furða, því hraðinn á knettinum, þegar Bobby spyrnir af sínum mesta krafti, er yfir sjötíu mílur á klst., samkvæmt raf- magnsútreikningi — 112 km. á klst. — ógnarhraði og þar er kannski góð- ur samjöfnuður, að spretthlaupari, sem hleypur 100 m. á 10 sek. er á inn- an við 40 km. meðalhraða á klst. Þetta þýðir, að Charlton-skot af um 30 m færi lendir í markinu á minna en sekúndu. Það er því ekki að furða þótt ítalir byðu eitt sinn 150 þúsund sterlings- pund í krónprinsinn á Old Trafford. Það virðast ekki miklir peningar nú —• en það var fyrir meira en tíu ár- um, þegar enska sölumetið var 45 þúsund sterlingspund, sem Manchest- er United greiddi fyrir Albert Quix- all frá Sheffield Wednesday. Og hvert er stórkostlegasta mark hans? Það er útilokað að svara þessari spurningu. Það má minnast á þau tvö, sem voru orsök þess, að England sigraði Portúgal og komst þess vegna í úrslit í heimsmeistarakeppninni 1966. Þau, sem hafa sigrað Skotland — þau, sem hann hefur skorað gegn Tottenham Hotspurs — alltaf það lið, þar sem Bobby Charlton virðist njóta sín bezt gegn. Kannski annað þeirra, sem hann skoraði gegn Charlton Athletic í fyrsta deildaleik sínum í október 1956 — nokkrum dögum áður en hann varð nítján ára. Það var svo frábær byrjun, að hún hefði getað sett margan ungan leik- mann úr jaínvægi. En ekki hinn unga Charlton, sem aðeins sagði eftir leik- inn: — Ég missti eitt. En ef ég hefði skorað þrennu hefðu þeir búizt við fernu í næsta leik — ekki satt? Hinir frægu Charlton-fætur hafa alltaf haldið sig við jörðina — Bobby hefur aldrei ofmetnazt af árangri sín- um. Alltaf sami Ijúfi pilturinn, sem aldrei hefur verið bókaður í leik — aldrei vísað af leikvelli. Þetta hefur hann frá föður sínum, hæglátum manni, sem sagði aðeins, þegar sonurinn sveiflaðist í sviðsljós- ið gegn Athletic í London. — Bobby stóð sig vel — hann mun gera það. Bobby Charlton er einn af þeim leikmönnum, sem vex í stórleikjum. Wembley-leikvangurinn var vettvang- ur annars tveggja marka byrjunar- leiks . . . í drengjaliði Englands gegn Skotlandi. Þar hófst eins manns styrjöld gegn Skotum, sem Charlton hefur unnið á nær öllum vígstöðvum. Hann var aðeins tvítugur, þegar hann lék landsleik á hinum sögufræga Hampden Park í Glasgow. En reynsluleysi kom ekki í veg fyrir, að hann skoraði stórkostlegt mark, sem Skotar tala enn um. I þessum fyrsta landsleik sínum lék hann við hlið Tom Finney og segir um atvikið: — Ég fékk knöttinn og spyrnti viðstöðu- laust — hann næstum brenndi gat á netmöskvana. Það var gott mark þó að ég segi sjálfur frá. Og það, sem var meira um vert — sérstætt, svo fólk man eftir því. Ég man vel Finn- ey. Hann „skapaði“ það ■—• einlék upp hægra megin gegnum skozku vörnina og sending hans var hnitmiðuð. Tólf mánuðum síðar — á Wembley —- þaggaði Charlton-pilturinn niður í skozku áhorfendunum, þegar hann skoraði eina markið í 100. landsleik Billy Wright. Bobby segir: — Þetta var einn af þessum leikjum, þar sem allt heppnaðist. Johnny Haynes sendi knöttinn mjög vel til Peter Broad- bent, sem skipti yfir til Douglas við hornflaggið. Þegar ég sá sendingu hans snúast inn að markteignum stökk ég upp og fram og skallaði knöttinn bak við Bill Brown. Charlton lék það einstæða afrek að leika í hverjum einasta landsleik Eng- lands—Skotlands frá 1958 til 1968. Eldlogarnir á Hampden lækkuðu 1966, þegar hann spyrnti knettinum á markið af 30 metra færi og mark- vörður Skota, Ferguson, sá varla knöttinn fyrr en hann lá í markinu. Það var þriðja mark Englands í 4— 3 sigri. En það eru ekki Skotar, sem einir hafa þjáðst. Portúgalar hafa einnig

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.