Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 79
VALSBLAÐIÐ
77
Fremsta röð:
Adolf Guðmundsson,
Jón Ólafsson,
Ölafur Þorsteinsson,
Diðrik Ólafsson,
Páll Björgvinsson,
Guðgeir Leifsson.
Aftasta röð:
Eggert Jóhannesson
þjálfari,
Þórhallur Jónasson,
Bjarni Gunnarsson,
Magnús Þarvaldsson,
Gunnar Gunnarsson
fyrirliði,
Guðjón Einarsson og
Ingvar Pálsson, sem
ávarpar hópinn og
afhendir bikarinn.
Víkingar bikarmeistarar KSI
Alltaf er eitthvað skemmtilegt að
koma fyrir í knattspyrnunni, og það
skemmtilega skeði í sumar, þó svolítið
óvænt, að Víkingar urðu sigurvegarar í
Bikarkeppni K. S. 1. Það var sannarlega
tími til kominn að þeir sprengdu af sér
hlekki tapanna, sem hafa fylgt þeim of
lengi. Víkingum er hér árnað heilla, og
betri gjöf gátu þessir ungu knattspyrnu-
menn ekki gefið gömlum Víkingum, sem
lengi hafa beðið og vonazt eftir árangri.
Undirritaður stóð við hlið eins þeirra,
þegar draumurinn var að rætast. Hjart-
að barðist, rómurinn varð klökkur, það
kom gljái í augun, svo ekki sé meira
sagt. Síðar sá ég hann á mynd með sig-
urvegurunum eins sigursælan og allt lið-
ið samanlagt. Nú er um að gera að
halda saman, því þetta eggjar mótherj-
ann, eða a. m. k. á svo að vera. Og við
endurtökum: Til hamingju Víkingar.
Til hamingju Keflvíkingar
Keflvíkingar unnu það afrek að verða
íslandsmeistarar í knattspyrnu 1971,
titilinn sem svo margir sækjast eftir og
vinna að. Þeir sýndu vilja og festu, allt
til síðasta leiks, því það er viljinn, sem
allt á veltur.
Fremri röð f. v.: Friðrik Ragnarsson, Karl Hermannsson, Hörður Ragnarsson, Reynir
Óskarsson, Þorsteinn Ólafsson, Gísli Torfason, Ástráður Gunnarsson, Hörður Sakarías-
son. — Aftari röð f. v.: Grétar Magnússon, Ólafur Júlíusson, Birgir Einarsson, Ingi-
mundur Hilmarsson, Steinar Jóhannsson, Guðni Iíjartansson, Einar Gunnarsson.
Jón Ó. Jónsson og þjálfarinn Einar Helgason.