Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1903, Blaðsíða 76
54
stööugt kostur á, að hafa guös orS sameiginlega um
hönd. Um áramótin 1877—78 var tekið aS halda
frjálsar trúarumræöur á Islendingahúsinu á hverju
föstudagskveldi. Hefir þar víst margt á góma boriö,
því nokkuö voru menn reikandi margir hverir í þeim
efnum um þetta leyti. Hve lengi þessir trúmála-
fundir hafa haldist, er ekki meö öllu ljóst. En aö
minsta kosti mun þeim hafa verið haldiö viö fram
undir vorið.
Þaö lítur út fyrir, aö íslensku prestarnir hafi skírt
fremur fátt af börnum þeim, sem fæöst hafa fyrstu
árin. Aö eins þrjú eru færö til bókar, sem séra Jón
hefir skírt, frá því hann kom 1877 og þangaö til hann
fór 1880, og hafa þau sjálfsagt ekki fleiri verið. Mun
þaö hafa komið til af því, hve sjaldan hann gat til
Winnipeg komiö. Má telja víst, aö menn hafi fariö
til innlendu prestanna í bænum og fengið þá til að
skíra fyrir sig, til þess aö láta ekki bömin bíöa of
lengi óskírö. Því þess eru örfá dæmi, aö íslenskir for-
eldrar hafi látið börn sín vera óskírð hér í landi.
Tíu hjónavígslur hefir hann framkvæmt áður en
hann fór til Islands. Fyrstu hjónin, sem hann gaf
saman, voru Arni Jónsson og Guöbjörg Árnadóttir,
og viö sama tækifæri mun hann hafa giít þau Sigurð
Júsúa Björnsson og Kristveigu. Rétt áður en hann
lagði af stað í Islandsferð sína gaf hann saman tvenn
hjón : Árna Friðriksson og Sigurbjörgu Þorláksdótt-
ur, en hin Gunnar Einarsson og Andreu Fischer.
Eina dauösfalliö, sem tilfært er, meöan síra Jón
gengdi hér prestsverkum, er Sesselja Sigvaldadóttir,
systir Árna Sigvaldasonar, sem áöur .var getiö. Hann
var nú um þessar mundir kominn suöur til Lincoln
Connty í Minnesota og hafði numið þar land. Hún
var gift Jóni nokkurum Gunnlaugssyni, manni vopn-
firskum, og var 27 ára gömul. Hún dó 29. ág. 1879
og var greftruð í grafreit Winnipeg-bæjar. Hún var
merk kona og myndarleg. —-Áöur (18. apr.) hafði ís-
lendingur einn aö nafni Einar Einarsson druknaö í