Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Síða 26
26 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
um áhuga, og meðan hann var upp á sitt besta stóðu
fáir alþýðumenn honum á sporði. Til íslands fór
Árni 1919 sem málsvari V.-íslendinga á ársfund
Eimskipafélags íslands. Var honum haldið samsæti
áður en hann lagði upp í ferðina af bygðarfólki og
honum gefin vönduð ferðataska, og vottuð virðing
og þakklæti samtíðarmannanna.
Kona Árna var Guðrún Helga Jónsdóttir Jóns-
sonar frá Gilsárstekk í Breiðdal, fædd þar 26. des.
1855. Móðir hennar var Guðný Sigurðardóttir An-
toníussonar sem lengi bjó á Skó,la á Berufjarðar-
strönd. Guðrún Helga var merkiskona, með afbrigð-
um dugleg, þrautseig, manndómsrík og vitur, og
var hún prýði sinnar stöðu sem æskurós, húsfreyja
og móðir; hún var fríð kona og fönguleg, geðspök
og stilt hvort sem alt lék í lyndi eða á móti blés.
Stóð hún sem hetja í stríði lífsins fram á gamals
aldur. Hún dó 27. júní 1938.
Árni var sæmdar maður og mikilhæfur en ör í
lund. Varð hann aldrei samur maður eftir fráfall
sonar síns Valdimars sem á sorglegan hátt misti
lífið 17. júlí 1923, á þann hátt að brunnur hrapaði á
hann sem hann var að grafa Var hann efnilegur
mannskostamaður. Síðustu ár æfinnar bjó Árni í
Glenboro, hann dó 7. marz 1928. Börn þessara merk-
ishjóna sem á lífi eru, eru hér talin.
1. Jón var lengi bóndi í Argyle-bygð, en býr nú í
Baldur og stundar járnsmíði; hann er þjóðhagi
sem faðir hans og valinkunnur maður. Kona
hans er Sigurveig Sigurbjörnsdóttir Jóhanns-
sonar, skálds frá Fótaskinni, gáfuð kona eins
og hún á kyn til.
2. Sveinn, ógiftur, á heima í Baldur og starfar
með bróður sínum.