Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Page 30
30 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
lætur kylfu ráða kasti með það hvert hann fær lof
eða last. Hann er þrekmaður mikill, enda hefir
hann þurft á því að halda, því hann hefir oft mætt
erfiðleikum og stundum mátt berjast allhart móti
straumnum. Hann á yfir að ráða miklum gáfnasjóð
og er þaullesinn og hefir nautn af því að ræða um
torskildar ráðgátur lífsins þegar hann hefir næði.
Sem læknir þykir hann sérstaklega snjall að útsjá
sjúkdóma og ekki allsjaldan að hann virðist sjá hvað
gengur að sjúklingnum án þess beint að horfa á
hann, eða rennir bara hornauga, og þó hann virðist í
fyrstu vera fráhrindandi og stundum hafi einkenni-
leg tilsvör, nær hann miklum vinsældum þeirra sem
leita til hans, og sérstaklega hefir gamla fólkið
tröllatrú á honum, hann er líka í insta eðli sínu val-
menni og trúmaður mikill þó hann sé ekki mikill
kirkjumaður, umfram alt hefir hann mestu óbeit á
því að sýnast. Hann hefir verið maður praktiskur
og hagsýnn í fjármálum, hefir jafnan verið fremur
bjargálna.
Kona hans er Þórunn Jónsdóttir Þorkelssonar
frá Lundar, prúð og hógvær kona, trygglynd og fá-
skiftin um annara hagi.
Börn þeirra eru 5 og eru hér talin eftir aldurs-
röð: 1. Margrét; 2. Björg; 3. Hjalti; 4. Grace; 5.
Pearl. Öll eru þau á æskuskeiði og í foreldra hús-
um, og öll eru þau mannvænleg. — í Glenboro
stundaði Dr. Hjaltason lækningar í mörg ár.
Jón Jónsson. Fæddur á Dvergasteini á Seyðis-
firði 25. desember 1878. Faðir hans, Jón Jónsson,
var fæddur í Hlíð í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu 28.
ágúst 1848. Foreldrar hans Jón Eiríksson og Sig-
ríður Bergsdóttir. Móðir Jóns sem hér um ræðir
var Kristín María Björnsdóttir, fædd á Nesi í Loð-
mundarfirði 3. maí 1851. Móðir hennar var Guðrún
Magnúsdóttir fóstur dóttir séra Engilberts í Þing-