Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Side 48
48 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
þar dó hann fyrir skömmu. Kona hans, sem enn
lifir og heima á í Winnipeg, er Sigríður Sigurðar-
dóttir ættúð úr Mýrasýslu.
Börn þeirra eru Sveinn, Ástfríður, Halldóra og
Guðríður á íslandi. Hér í landi eru: Laufey, gift
hérlendum manni, býr í Winnipeg; Kristín, gift
Gunnlaugi Sveinssyni Björgólfssonar, áður bóndi í
Argyle-bygð en nú að Oak Point, og Lárus í Win-
nipeg. Hann innritaðist í herinn 1916 í 226. herd ,
særðist 26. okt. 1917. Kom heim úr stríðinu 21.
febr. 1918. Síðan heim kom varð að taka af hon-
um annan fótinn. Hann á heima í Winnipeg og hefir
haft stöðuga vinnu. Árni Halldórsson var að nátt-
úrufari fremur vel greindur.
Einar Jónsson, hann var fæddur 13. sept. 1834 í
S.-Þingeyjarsýslu. Hann kom til Vesturheims 1878.
Hann var lengi bóndi í Argyle-bygð en síðustu æfi-
árin var hann í Glenboro; hann varð maður gamall.
Rannveig Sigurðardóttir hét kona hans, fædd
8. sept. 1832 í N.-Þingeyjarsýslu. Þau hjón komu
til Argyle um 1882. Son áttu þau er Benedikt hét,
hann dó 25. marz 1898, dóttir hans er Sigrún hét,
ólu þau Einar og Rannveig upp. Hún er gift Erlendi
Jónasi Helgason og búa þau í Brunkild, Man. Er-
lendur er sonur Jónasar Helgasonar, merkisbónda í
Argyle-bygð og konu hans Sigríðar Sigurðardóttir.
Rannveig dó í Glenboro 28. sept. 1925.
Helga Jórunn Jónsdóttir, ekkja Sigurjóns
Kristóferssonar frá Ytri-Neslöndum við Mývatn,
átti heima í Glenboro í mörg ár, og bjó með dóttir
sinni Þorgerði Ólöfu. Helga var fædd í Reykja-
hverfi í Þingeyjarsýslu 26. júlí 1855. Kom til Vest-
urheims 1893 með manni sínum og börnum, bjuggu
þau í Argyle þar til hann dó 18. okt. 1920. Héðan
fluttu þær mæðgur til Árborg og síðan til Breden-