Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1939, Side 89
ALMANAK 1939
89
legar; en þær hepnuðust vel, því hann var bæði at-
hugull og snarráður. Hann var mörg ár skipstjóri á
flutningsbátum á Manitoba-vatni; fyrst fyrir hér-
lent auðfélag, en síðar á stórum seglbát er hann
smíðaði sjálfur, og setti síðar vél í hann. Þann bát
starfrækti hann fyrir eigin reikning til vöru- og
mannflutninga um nokkur ár. Þá hefir starfsemi
hans verið umfangsmest síðan hann fluttist á Siglu-
nes. Hann hefir haft þar stóra útgerð til fiskiveiða,
oft um 40 menn eða fleiri. Fyrstu árin stjórnaði
hann þessu fyrir Armstrong Tr. Co., en síðar fyrir
sjálfan sig og sonu sína. Hann bygði sögunar-
myllu á heimili sínu og kassaverksmiðju, og hefir
unnið að því alla þá tíma árs sem fiskiveiðar hafa
ekki verið stundaðar. Sögunarmyllan brann fyrir
nokkrum árum, en hann bygði hana þegar aftur,
vandaðri en áður.
Ásmundur naut engrar mentunar í æsku, því
barnaskólar voru lítt starfræktir hér í fámennum
nýlendum um 1890. En hann hefir haft góða náms-
gáfu, og hefir aflað sér ótrúlega mikillar þekkingar
í ýmsum greinum. Sérstaklega mun hann hafa
haft góða gáfu fyrir verkfræði, því hann er manna
hagsýnastur um verknað allan, og laginn verkstjóri.
Ásmundur er manna greiðugastur og hefir góða
mannhylli.
John J. Johnson, er fæddur á Sleðbrjót í Jökuls-
árhlíð 3. marz 1894. Foreldrar hans voru þau Jón
Jónsson, alþm. og Guðrún Jónsdóttir kona hans. Er
ættar þeirra getið í þætti Siglunesbúa 1914. Jón
fluttist vestur um haf með foreldrum sínum 1903
o& ólst upp hjá þeim til fullorðinsára. Faðir hans
lézt 1923. Höfðu þeir bræður, Jón, Páll og Guð-
mundur unnið allir að búinu fram að þeim tíma, en
hættu þá búskap að mestu, en héldu þó heimilinu
við, en unnu á ýmsum stöðum.
Jón kvæntist 1931. Kona hans heitir Annie
Ethel og er af enskum ættum. Þau eiga tvo sonu,