Afturelding - 01.03.1968, Qupperneq 8

Afturelding - 01.03.1968, Qupperneq 8
Hvaða þýðingu hefur kristið heimili ? 1 spurning - 3 svör Þetta er teldð úr víSlesnu sœnsku blaSi. Óskar Nilsson, íélagsmálaróSherra: Fyrstu mánuðina af ævi barnsins, tekur barnið inn til sín andrúmsloft heimilisins. Þau áhrif verða grundvallandi og einkennir meir og meir hinn verðandi mann í öllu, sem lýtur að rétti, sann- Ieika, kærleika og réttlætistilfinningu. Vísast er áminninga þörf, en hitt hefur þó miklu meir að segja, áhrifin frá því heimili sem einkennist af guðhræðslu og bæn. Þetta er andlegur arfur, sem þroskast því meir með barninu og unglingnum, sem árin líða. Hvernig sem lífsvegurinn formar sig, verður andlegi arfurinn lifandi raunveruleiki hjá öllum. f hverju þjóðfélagi er hvert kristið heimili eins og lind ljóss og kraftar, sem ómögulegt er að meta að verðleikum. Birgit Palm, frú: Það er ómögulegt að meta það of hátt. Dæmin frá sögu kristninnar eru svo fjölmörg, sem renna rökum undir mikilvægi kristins heimilis. Og sjálf hef ég innlifað blessanir þess sem kristið bernsku- heimili veilir. Mikið er undir því komið, að foreldrarnir í krislnu heimili hafi næma ábyrgðarlilfinningu gagnvart skyldum sínum við börnin. Fordæmi foreldranna og uppfræðsla hefur oftazt nær úrslita þýðingu á viðhorf barnsins til flestra hluta í lif- inu. Frú Booth, kona stofnanda Hjálpræðishersins, var eitt sinn spurð, hver væri leyndardómur þess, að hún hefði unnið öll börn sín til lifandi trúar á Jesúm Krist? Hún svaraði: „Ég setti mér alltaf það markmið, að verða á undan Satan.“ Það bezta, sem við getum gefið börnum okkar, er ekki alltaf það sem þau óska sér. Nei, það er að gefa þeirn kristið heimili. Birger Andréen, forstöðumaSur: í raun og sannleika getur engin mannleg tunga sagt hve svimháa þýðingu kristið heimili hefur. Sérhverju heimili mæta margvíslegar áhyggjur. Þetta er gangur lífsins. Að hugsa sér þá, hvíiíka þýðingu það hefur að geta varpað öllum áhyggj- um sínum á Drottin! Heimili getur verið fátækt, en það er auðugt, ef Guð er miðdepill þess. Það dreifir skuggum fátæktarinnar. Þau börn eru hamingjusöm sem alast upp í kristnu heimili. Persónulega get ég játað það, að guðsótti móður minnar hefur fylgt mér og orðiö mér til stöðugrar blessunar allt lífið. Á umliðnum árum hef ég komið í mörg þúsund heimili í ólíkum löndum. Það hefur sýnt mér hví- líkur reginn munur er á milli kristinna heimila og hinna, sem ekki eru það. Eitt sinn fékk ég bréf frá móður fyrir austan járntjald. í bréfinu þakk- aði hún fyrir fatnað, sem ég hafði sent henni, og svo skrifaði hún hugleiðingu nokkra, sem ég hef oft hugsað um. Hún skrifar: „Nýju austurvald- hafarnir hafa nú þvingað manninn minn til að ferðast langt inn í Rússland, til þess að vinna þar. Getum við þá nokkurntíma vænzt þess að hittast framar? I mörg ár hefur hann aðeins getað komið heim einu sinni á ári, vegna þess hvað lítið liann hefur haft í aðra liönd. En hvernig mun það þá verða hér eftir? — En við erum öll frelsuð, og við væntum endurkomu Krists. Við horfum fram til þess dags, er allar sorgir jarðlífsins eru að baki. Þá mætumst við til þess að eignast betra heimili um eilífð.“ Hvílík von, sem kristið heimili á! Hvernig sem

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.