Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Síða 7
andi í ósköpum þessum scm öðru, er fram við
oss kemur, þótt vér skiljum slíkt ekki á voru
takmarkaða þroskastigi. Vér efumst ekki um, að
knýjandi nauðsyn hefur látið ofsaveður þetta
á dynja. Slíks fellibyls og þrumuveðurs ]>urfti til
]>ess að hreinsa vort andlega andrúmsloft. Og ef
lil vill þarf meira til að hreinsa það til hlítar, en
enn þá er fram komið. Sennilega miklu meira.
Nú er dómsdagur haldinn yfir öfugsnúinni
menningu mannkynsins.
Dómsorðið er upp kveðið: áfellisdómurinn
yfir efnishyggjunni, sem hrundið hefur fyrst
og fremst stríðinu af stað, — gróðafíkn til fjár og
landa, er vakið hefur þetta verzlunar- og viöskifta-
slrið, — ofurkappi svonefndra stjórnmálaskörunga,
er ginnt hafa og æst ábyrgðarlaus stjórnarvöld,
metoröagjarna berforingja og hugsunarsljóva þegna
til þess að ganga á þelta geigvæna bál.
Vel má vera, að komandi kynslóðum verði það
unt, en vorri öld ekki, að átta sig til hlitar á réit-
mæti þessa áfellisdóms. Enn er margt sem glepur
sýn, óbifandi efnishyggjutrú er mörgum nútíðar-
mönnum rnnnin svo í mcrg og blóð, að »sjáandi
sjá þeir eigi og heyrandi heyra þeir eigi né
skilja«.
En þó bendir margt á, að andlegir, göfgandi
lífsstraumar séu að brjótast fram í flaumi yfir