Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Side 28

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Side 28
unnið yður tjón, nema því að eins að þér hafið sjálfir smiðað þeim vopnin í liendur með breytni yðar. Ef þér viljið þekkja Krist, er hann kemur, þá tignið anda Ivrists og eð)i. Temjið yður að taka móðgunum með fyrirgefningu, ásökunum með þögn og þolinmæði; forðist alla reiði og gjaldið ekki ilt með illu, heldur með góðu. Og ef yður auðnast að innræta yður þetta Krists-hugarfar og temja yður þessa Krists-breytni, þá munu augu yðar ekki verða svo haldin, er hann kemur, að þér þekkið hann ekki. Því þótt Krists-hugarfar yðar sé ófullkomið, en hans fullkomið, þá mun það þó fá gert yður fært að horfa gegn hinum guðdómlega ljóma, sem fær þá lýsl yður, en að öðrum kosti mundi blinda yður. Ef þér þráið að þekkja Krist, er bann kemur, þá reynið að glæða hjá yður, ekki að eins mildi og biðlund, heldur alla þá eiginleika, sem yður eru nauðsynlegir til þess að geta lifað í sannleika andlegu lífi. Þér þurfið að glæða hjá yður ástúð gagnvart öllu, sem þér mætið á lífsleiðinni, hvort sem það er ógeðfelt eða aðlaðandi. Þér þurfið og að hafa þá þolinmæði til brunns að bera, sem eykst við það að mæta erfiðleikum þeim, sem rísa af fávizku og skilnings- skorti annara manna. Og nærgætni yðar verður að vera hvað mest gagnvart hinum breyzku og þeim, sem fráfæl- ast yður. Ef þér þráið að þekkja bann, er hann kemur, þá reynið nú þegar að venja yður af þvi að skima sí og æ eftir göll- um hjá þvi, sem er gott og göfugt. Þeir menn eru til, sem leila fyrst og fremst að blettunum á sólinni, er þeir athuga hana. Og það er sagt að engin hetja sé helja í augum her- bergisþjónsins. En hvers vegna? Það er ekki af því að hetjan sé ekki hetja, heldur vegna hins, að þjónninn kann 2(i

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.