Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Qupperneq 75
sveinbörn tvævetur og þaðan af yngri í fæðingarborg Krists og
í nálægum héruðum. En Kristur komst þó undan. Hinir fyrslu,
sem veittu honum lotningu voru fjárhirðar. Sjálfur hefur hann
verið nefnuur góði hirðirinn.
Krishna ferðaðisl um landið og kendi; hann gerði og mörg
tákn og undur, læknaði sjúka og rak út illa anda.
Búddha gerði og samskonar máttarverk; hann lifði sem um-
ferðaprédikari og förumunkur.
Kristur kendi, gekk um kring og gerði golt, læknaði líkam-
lega sjúkdóma og rak út illa anda.
Enginn þessara trúarleiðloga færði kenningar sínar í letur,
hvorki það, sem þeir kendu lærisveinum sínum né það, sem
þeir kendu »hinum út í frá«.
Krishna gerðist óhlífinn við hið ytra trúarvald sinna tíma.
Hann sakaði prestana um valdagræðgi og hræsni. Sagan segir
að hann hafi líka orðið að láta lífið fyrir tilstilli prestanna,
og verið negldur á krosstré með örvum. Arjúna, lærisveinninn,
sem hann unni mest, var lijá lionum fram í dauðann.
Búddha reis öndverður gegn afguðadýrkun og kreddufeslu
prestanna. Hann varð því halaður af klerkalýðnum, en komst
þó hjá lííláti með því að safna umhverfis sig mörg þúsund
fylgisinönnum. Hann andaðist undir tré einu umkringdur af
lærisveinum sínum, og meðal þeirra var Ananda, lærisveinninn,
sein honum var hjartfólgnastur. í mörgum helgidómum eru
myndir af Búddha, þar sem liann situr undir krossvöxnum
viði, sem sagt er að eigi að tákna við lifsiiís.
Kristur gekk í berliögg við gamalguðfræði og helgisiðatrú
Farisea og liinna rilningafróðu. Hann brá þeim um skinhelgi
og dauða hókstafstrú. Hann var líflátinn fyrir lilslilli klerka-
lýðsins. Dauðdagi hans var krossfesling. Einn af lærisveinum
10
73