Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Side 59
IÐUNN]
Woodrow Wilson.
297
um nokkurt skeið ómögulegt að trúa, að nokkur
stjórn, sem nokkuru sinni hafði tjáð sig fylgjandi
mannúðarreglum þeim, sem framfylgt er af siðuðum
Þjóðum, mundi geta gert slíka hluti«. Og síðar í ræðu
sinni, þar sem hann víkur að undirhyggjumálum
Þýzkalands \ið Ameríku, komst hann svo að orði:
iiÞau hafa gert sitt til þess að sannfæra oss um það
nú að síðustu, að þessi stjórn ber engan verulegan
vinarhug til vor, en hygst að breyta á móti friðsemd
vorri og öryggi eins og henni þykir bezt henta«. Og
að lokum, er hann veik orðum sínum að einveldinu
og lét ánægju sína í ljós yfir byltingunni á Rússlandi,
mælti hann þau orð, sem fóru eins og eldur í sinu
«m allan hnöttinn: »Það verður að tryggja lýðveldis-
hugsjónunum heiminn«. Árangur ræðu þessarar var
eins og kunnugt er, að þingið samþykti, að Banda-
•'ikin segðu Þýzkalandi stríð á hendur.
Ef til vill heíir nú sagan, sem lítur jafn hlutdrægn-
'slaust á einveldi og lýðveldi, höfðingstjórnir og skríl-
r3eði og gerir ekki annað en skrá atburðina, glott
kánkvíslega, er forselinn mælti þessi orð um lýðvalds-
hugsjónirnar; því að bæði gerði nú stjórnarskrá Banda-
rikjanna og stríðsyfirlýsingin, svo og auðmagn þeirra
°g fólksfjöldi sjálfan forsetann á samri stundu að
einhverjum þeim áhrifamesta einvalda, er sögur fara
ah Því að auk eldmóðs þess, sem jafnaðarlegast
•ylgir afturhvárfinu, liafði liann nú fengið svo að
Segja ótakmörkuð völd í hendur. Þá er þingið
hafði setið liðuga 6 mánuði, hafði það veitt forset-
anum eftir lengri eða skemmri bið alt, sem hann fór
h'am á. Og á þessum sömu mánuðum varð hann
að þeim athafna-risa, sem á fáa sína líka, réðst og
'ét aðra ráðast í livert risa-fyrirtækið á fætur öðru.
()g það var ekkert smáræði, sem hann fór fram á;
hann heimtaði alt: fé, efni og fjör þegna sinna, og í
s*íkum mæli, að stríðið hlyti að leiða til farsællegra