Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Page 72

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Page 72
310 Síðasti engillinn hans Antonio Allegri. [iðunn Jjóslega, að öll þessi útfarar-viðhöfn hafi að eins verið fyrir siða sakir, því að fám döguni liðnum mundi enginn eftir því, að Correggio hefði látið eftir sig konu og börn, sem skorti brauð. En Taddeo di Monsalvo gleymdi þeim ekki. Það var tillaga hans að selja skyldi allar þær teiknanir og öll þau mál- verk, er voru í vinnustofu hins látna listamanns, og ttieðal þeirra var líka »síðasti engillinn hans«. Vonaði Taddeo að svo mikið fé fengist fyrir þau, að hin fá- tæka fjölskylda gæti lifað af því. Daginn sem upp- boðið var haldið, komu sendiherrar frá öllum höfð- ingjum landsins, en fremur litill varð ágóðinn af sölu teiknananna. Eina vonin var þá »síðasti engillinn«; en þegar uppboðið var byrjað, leit heldur ekki út fyrir að mikið fengist jafnvel fyrir hann. Sendiherr- ánn frá Ferrara bauð sem sé 400 dali, sendiherrann frá Róm 600 dali, sendiherrann frá Mílanó 800 dali og sendiherrann frá Mantova 1000 dali. Og nú var að því komið, að myndin yrði slegin þeim síðast- nefnda, en þá voru dyrnar að uppboðssalnum opn- aðar og inn kom riddari albrynjaður með hjálm- blikið dregið niður. Hann gekk snúðugt inn salinn, lagði hendina á bekk uppboðshaldarans og mælti hárri röddu: »í nafni Franz fyrsta, konungs yfir Frakklandi, býð ég 50,000 reala«. Allir voru sem þrumu lostnir. Eh þó urðu þeir enn meira forviða, er hinn ókunni riddari lióf upp hjálmblikið, því þá sáu allir, að þar var kominn »faðir Taddeo«. Og það var hann í raun og veru. Þegar hann hafði fengið fregnir um það, að Franz fyrsli væri á herferð i Ítalíu, bjó liann sig fornum hertýgjum sínum og fóf til lierbúða hins mikla konungs; og með því hann var víðfrægur maður, veitti honum auðvelt að fá leyfi lil að finna konung að máli. Hann sagði lion- um þá, með hve sorglegum hætti dauða listamanns- ins hafði borið að liöndum, skv'rði frá bágindum

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.