Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Qupperneq 60
298
Woodrow Wilson.
[ IÐUNN
lykta fyrir þá og bandamenn. Þegar frá upphafi lét
hann í ljós, að hann léti einskis ófreistað til þessa.
<)g í hinni minnisverðu ræðu sinni 2. apríl lýsti hann
því, hvað hann ætlaði að gera. Og hann hefir gert
það: 1., Hann ætlaði sér að styðja bandamenn, sem
frekast mætti verða, einkum þó með öflugum lánum
og fjárframlögum. Og nú eru ameríksk skip alstaðar
á sveimi á skipaleiðum Norðurálfunnar, og ame-
ríkskar hersveitir bæði á Englandi og Frakklandi á
leiðinni til vígvallanna. Allar nauðsynjavörur settar
niður fyrir bandamönnum og sex hundruð miljónir
sterlingspunda veittar þeim að láni. 2. Hann ætlaði
að koma skipulagi á og hagnýta sér allar auðsupp-
sprettur Bandaríkjanna í þágu stríðsins. Og þetta
hefir þegar verið gert á marga vegu með nefndum
þeim og undirnefndum, er hann hefir skipað, og með
aðstoð »Þjóðvarnarnefndarinnar« og hinnar ráðgef-
andi nefndar, sem allar eru skipaðar helztu áhrifa-
mönnum landsins. Alt það, sem gert hefir verið, yrði
of langt upp að telja og myndi fylla heila bók. En
það nægir að gela þess, að allar námur, búgarðar,
verksmiðjur, búðir, útgerðarfélög, járnbrautir, rit-
símar og raddsímar starfa nú undir yfirumsjón stjórn-
arinnar og í hennar þjónustu; en þær reglur settar
um verzlun og skipagöngur annara þjóða, sem við-
skifti eiga við Bandaríkin, að Miðveldin geta ekki
vænzt neinnar hjálpar þaðan. í 3. lagi ætlaði liann
sér að treysta llotann svo, að hann jtöí fullvígur.
Áhöfn hans hefir nú verið hækkuð úr 80 þús. upp
í 200 þús. manns, margir tundurspillar bygðir og
mörg smærri hraðskreið skip til þess að granda
neðansjávarbátum Þjóðverja. Tvö þúsund miljónir
dollara veittar til eflingar flotans, og er nú unnið
dag og nótt á öllum skipasmíðastöðvum landsins til
þess að auka hann sem mest. 4. Herinn skyldi auka,
sem frekast væri unt. Og hann er nú kominn upp í