Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Blaðsíða 75
IÐUNN1
Frá landamærum lífs og dauða.
Eltir
Stgr. Matthíasson.
í greininni »Lífið er dásamlegt« í síðasta hefti »Ið-
unnar«, þar sem ég mintist á vetrardvala ýmissa dýra
og dauðdá, gat ég um sögur af fakirunum á Indlandi,
sem fullyrt er úm að geti eftir vild lagst í svo djúpt
dá, að enginn geti annað séð, en að þeir séu dauðir.
Og í sambandi við það mintist ég á enskan ofursta,
Townsend að nafni, sem sagt er að hafi verið þessum
sömu hæfileikum gæddur og fakírarnir. Ég hafði þá
sögu eftir riti próf. Weiss: »Livet og dets Love«, en
gat þess um leið, að þar eð frásögnin þar væri svo
stutt, þá hefði ég skrifað próf. Weiss til að leita mér
betri upplýsinga um þetta merkilega fyrirbrigði. Ég
hefi nú meðtekið ágætt bréf og ítarlegt frá próf. Weiss
og skal ég hér tilfæra úr því það helzta. Próf. skrifar:
» . . . Frásöguna um Townsend ofursta hefi ég tekið úr
riti eftir Max Verworn: Allgemeine Physiologie, IV. Aull.
1903, bls. 135—136, en hann getur þess, að um þetta sama efni
megi lesa i ritinu »Der Hypnotismus« Ausgewiihlte Schriften
von James Braid. Deutsch, herausgegeben von W. Preyer.
Berlin 1882. Par eð þér ef til vill eigi hafið aðgang að þess-
orn ritum, skal ég tilfæra það, sem Verworn segir i áfram-
haldi af því, er hann ritar um fakirana indversku. (Ver-
'Vorn er prófessor i lífeðlisfræði við liáskólann í Jena).
Bls. 135: »Fjöldamargir meira og minna áreiðanlegir heim-
ddarmenn hafa skýrt frá, að þeir hafi verið sjónarvottar
að svipuðum fyrirbrigðum. Enn i'remur hefir samskonar
sézt hér í Norðurálfunni, eins og hin alkunna saga af
l'ownsend ofursta getur um, en hún er skráð af dr.
Pheyne lækni frá Dublin, sem var viðurkendur visinda-
oiaður. Ilann segir svo frá um Townsend: »Hann gal dáið
eftir vild, þ. e. a. s. hætt að anda og vaknað aftur til lífs