Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Síða 5

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Síða 5
IÐUNN Völu-Steinn. 163 kristniboð Þangbrands hafi gagntekið hann og skipað reynslu hans og íhugunum í kerfi. Eg hef kveðið svo að orði, að ef til vill vissum vér meira um hann en nokkurn annan norrænan mann fyrir 1100, að Agli einum untanteknum, af því að vér þektum lífsskoðun hans, sagða með hans eigin orðum. Nú erum vér engan veginn ókunnugir á íslandi i lok 10. aldar. íslendingasögur lýsa fjölda manna frá þeim tíma og marka einkenni þeirra glögglega. I*ær koma að vísu misjafnt niður, svo að sum héröð eru sögulaus, en þar brýnir Landnáma úr skörðin, svo að yfirlitið yfir mannval íslendinga á 10. öld verður furðanlega fullkomið. Við þetta bætist, að sennilegt er, að höfundur Völuspár hafi ort dróttkvæði. Ekkert Eddukvæði er dróttkvæðunum skyldara að formi (ávarpið í upphafi kvæðisins, stef), smekk og ein- stökum orðatiltækjum. En nöfn þeirra skálda fylgdu kvæðum þeirra og vísum. Er það nú líklegt, að höf- undur Völuspár, einhver merkilegasti maður, sem norræni kynstofninn hefir alið, hafi leynzt svo í birtu sjálfrar sögualdarinnar, að engin saga geti reynslu hans að neinu, að ekkert vísubrot annað sé varðveitt eftir hann? Það er nærri því óhugsandi. En þá er að svipast um meðal íslendinga á síðasta áratugi 10J aldar, og vita hvort mynd sú, sem kvæðið bregður upp af höfundi sínum, verður talin líkjast nokkrum þeirra. Hér er enginn kostur þess að telja upp alla þá menn, sem mér finnast ekki geta komið til mála. Það geta þeir gert, sem vilja benda á annan mann jafn-líklegan eða líklegri. Maðurinn, sem mér hefir dottið í hug, er hvorki hirðskáld né söguhetja, en þrátt fyrir það hefir hann ort dróttkvæði og vér vitum nokkur skil á honum og æfi hans. Það er Völu-Steinn í Vatnsnesi í Bolungarvík.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Iðunn : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.