Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Blaðsíða 49
IÐUNN
Pislarvottar tizkunnar.
207
og kennimenn móli stuttum kvenbúningum, því að
með því væru konurnar láta það sjást, sem guð hefði
hulið — með því að klæða Evu í skinnkyrtil í Eden!
Hvað hefðu þeir þá mátt segja á undanförnum árum.
Ef við snúum okkur svo að karlmannabúningn-
um á þessum öldum, þá tekur ekki betra við. AUar
þær tilraunir,
sem þeir hafa
gert til þess að
vera í merkileg-
um buxum, eru
fleiri en svo, að
þeim verði lýst
í fáum orðum.
Það verður því
að stikla á
stærstu vitleys-
unum.
Á 14. og 15.
öld þektu menn
ekki aðra nauð-
syn meiri en
þá, að gera
buxurnar svo
þröngar, að þar
varð að ganga maður undir manns hönd til þess að
koma verulega velklæddum manni i buxurnar og úr
þeim. Oft og víða sýnist pottur hafa verið brotinn í
þessu efni. Að minsta kosti sagði heimamaður Snorra
goða það, þegar hann vildi draga brókina af t*ór-
oddi Þorbrandssyni og fékk ekki náð henni: »Eigi
er það logið af ykkur þorbrandssonum, að þér eruð
sundurgerðarmenn miklir, að þér hafið klæði svo
þröng, að eigi verður af yður komið«. Einkennileg-
ast var það þó, að með þessum þröngu buxum voru
4. mynd.