Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Blaðsíða 69
ÍÐUNN
Róm.
227
heyrt svo aðdáanlegan söng né slíkar raddir. Ég
lokaði augunum, svo ekkert skyldi draga úr athygli
minni. Streymdu þá yfir mig minningar aldanna,
barátta og sigurvon Guðs kristni á jörðinni. Komu
þeir fram í hugann Gregoríus 7. og Uibanus, sem
dagurinn er kendur við (Urbanusmessa, 25. mai).
Og er söngurinn dó út með þessu hughreystingar-
andvarpi: »In te Domine speravi, non confundar in
æternum«, þá stóð ég upp og flýtti mér beint út í
Péturskiikjuna, þar sem ég fann afvikinn stað til
þess að halda mína eigin bænagjörð í kyrþey. —
Daginn eftir kvaddi ég Róm og hélt leiðar minnar.
Undirstöðuatriði í jarðfræðí
íslands
(Fundamentals of lcelandic Geology).
I.
Grein þessi er um nokkur undirstöðuatriði í jarð-
fræði íslands sem ekki má sleppa, hversu stutt ágrip
sem ritað er eða kent um það efni. í*að er ekki unt
að hafa neitt yfirlit, sem svo geti heilið, yfir jarðsögu
landsins, án þess að vita þessi undirstöðuatriði, en
ókunn voru þau þegar Þorvaldur heitinn Thoroddsen
lauk rannsóknum sínum á landinu, undir aldamótin
síðustu. Næsta furðulegt er, að í kenslubók í jarð-
fræði eftir Guðm. G. Bárðarson, 1922, sem annars er
mjög þakkarverð, kemur ekki fram að honum sje