Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 9

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 9
IÐUNN Völu-Steinn. 107 haft mikil áhrif á liann. Gísli Súrsson er einn hinna merkustu tímamótamanna 10. aldar Hann er heið- inn, en virðist þó hafa haft einhver kynni af kristn- inni, og i útlegðinni þroskast lífsskoðun hans. Draumkona hans varar hann við að nema galdur, áminnir hann um að hjálpa voluðum og býður hon- um að vekja ekki víg að fyrra bragði. Sömu skoð- anir: að galdrar sé tvíeggjað sverð, að víg sé böl, en vægðarsemi dygð1) — koma einmitt fram í Völu- spá. En Steinn hefir hlotið að þekkja Gísla og vísur hans, þar sem þeir voru samtímamenn og í sama þingi. Af kynningu þeirra Steins og Gests Oddleifs- sonar fara reyndar ekki beinar sögur. En þéir hafa hizt á Þorskafjarðarþingi og víðar, enda myndi Egill Völu-Steinsson varla hafa leitað til Gests um svo viðkvæmt mál sem harm föður sins, nema vinátta hefði verið á milli. En Gestur er einn með vitrustu mönnum, sem uppi hafa verið á íslandi. Þó að það sé forspár hans um einstaka atburði, sem sögurnar halda á lofti, leikur hvarvetna sá ljómi um manninn, að auðséð er, að speki hans hefir verið af öðru og æðra tæi um leið. Gestur hefir kynst kristninni m. a. hjá vini sínum Ólafi páa (sem þekti hana frá Mel- korku móður sinni), og það er liklegt, að hann hafi myndað sér samfelda heiðna lifsskoðun, með ein- hverjum kristnum blæ, sem hafi verið svipuð undir- stöðu Völuspár. Hversu mikið Steinn (og þá um leið Völuspá) hefir átt Gesti að þakka, verður aldrei full- rakið. En það væri þá ekki í siðasta sinni sem inn- blásnu skáldi hefði tekist að færa þá speki, sem hann hefði að nokkru leyti sótt til annara, í ódauð- legan búning. Því miður eru öll atvik að vigi Ögmundar nú gleymd. Það er eitt af hinum mörgu söguefnum, 1) Smbr. útgáfu mina bls. 59, 71.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.