Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Síða 10

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Síða 10
168 Sigurður Nordal: IÐUNN sem fólgin eru í Landnámu, og ritöldin hefir ekki fært sér að fullu í nyt. Hin stutta saga Ólafs belgs er í einu brosleg og átakanleg: »Óláfr belgr, er Ormr enn mjóvi rak á brott ór Óláfsvík, nam Belgsdal ok bjó á Belgstöðum, áðr þeir Pjóðrekr ráku hann á brott. Síðan nam hann inn frá Grjótvallarmúla ok bjó í Óláfsdal«. Það er ekki liklegt af þessari frá- sögn, að þeir feðgar hafi verið miklir skörungar, og Þorvaldur hefir ekki mátt sin mikils móli ójafnaðar- manninum Þórarni gjallanda. Ögmundur virðist ekki hafa tekið sökina á hendur Þórarni af ásælni, heldur af drenglyndi og réttsýni. í honum hefir ekki verið ills þegiis efni vaxið, fremur en Böðvari Egilssyni, og ást föður hans hefir verið mikil og heit. Það er full ástæða til þess að ætla, að persónuleg reynsla hafi gert höfundi Völuspár sérstaklega hugstætt, hví- líkur glæpur eiðrof og griðrof væri, þar sem hann lætur griðrof goðanna marka timamót í sögu heims- ins. Nú var Ögmundur veginn á þingi, líklega vopn- laus og ugglaus í sjálfri þinghelgi. Þetta voru grið- rof, sem föður hans hlutu að vaxa mjög í augum í harmi sínum. Landnáma getur ekki neinna hefnda eftir Ögmund, þó að líklegt sé, að þær hafi fram komið. En hún segir frá helstríði því, er Steinn bar eftir son sinn. í því atriði fer saman saga hans og Egils Skalla- grímssonar: sálarlíf þeirra er svo rikt, að harmur og hugstríð getur borið þá ofurliði. Gestur gefur sama ráðið og Þorgerður Egilsdóttir fann, enda mun honum hafa verið sú saga fullkunnug af frásögn Þorgerðar sjálfrar: að létta treganum með því að yrkja úm hann. Eitt af mörgu, sem vér eigum Snorra Slurlusyni að þakka, er að hafa varðveitt frá glötun þessa vísuhelminga úr Ögmundardrápu. Þó að ekkert yrði annað af þeim ráöið um samband Völu-Steins og Völuspár, en að hann hefði ort dróttkvæði, ort
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Iðunn : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.