Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 21

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 21
IÐUNN Um flutning latínuskólanna til Reykjavíkur og tildrögin til þess. Svo sem kunnugt er, var skömmu eftir siðaskiftin komið á stofn tveim föstum skólum handa presta- efnum hér á landi, sínum á hvorum biskupsstólnum. Mátti svo segja, að biskuparnir skyldu hafa allan veg og vanda af þeim. Peir áttu að sjá kennurum fyrir fæði, húsnæði og launum. þá skyldu þeir og sjá ölmususveinum fyrir húsnæði, fæði, þjónustu, ljósi, pappír og að nokkru leyti fyrir fötum, þann tíma er þeir dvöldu í skólanum. Þeir áttu mikinn þátt í skipun kennara, og áttu að hafa náið eftirlit með öllu framferði í skólanum, kenslu og öðru, og tóku stundum jafnvel nokkurn þátt i kenslunni sjálfir. Þeim voru fengnar stólsjarðirnar til forráöa, og áttu þeir að taka afgjöld þeirra upp í laun sín og til að standa straum af skólunum, og svo fengu þeir og nokkuð af konungstíundum, þegar jarðarafgjöldin og kvaðirnar, sem á jörðunum hvíldu, þóttu ekki nægja. þetta skipulag veitti biskupunum ærið einræðisvald yfir skólunum, og lítið eftirlit var sjálfsagt með því, hve vandlega skólareglugerðinni var>fylgt. Þetta sam- kurl á tekjum biskupanna og skólanna gat ekki reynst vel. Pví meira sem biskup sparaði við skól- ann, því meira féll í hans hlut. Öðrum eins fræðslu- frömuði og Guðbrandi biskupi var jafnvel brugðið um það, að hann héldi lélegan skólameistara, til þess að komast sem léttast út af útlátum við hann. Á hve mikium eða litlum rökum, sem þessi áburður kann að hafa verið bygður, sýnir hann þó álit manna á skipulaginu. Fyrir biskupana sjálfa varð það eigi

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.