Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 23

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 23
ÍÐUNN Um flutning latínuskólanna. 181 tilskipun um húsaga, tilskipun um okur, brennivín og tóbak. Þegar litið er á tilskipanir þessar, sést það, að hér á að efna til stórfeldra breytinga, hvorki meira né minna en umskapa hug þjóðariunar og háttu, og efni lagaboðanna bendir á, að tilætlunin er sú, að steypa þjóðina í mót heittrúarstefnunnar. Enn eru ótalin lagaboð þau, er beinast snerta skólana; þau eru: tilskipun um latínuskólana á Íslandi (8/s 1743), reglugerð um latínuskólana (10/6 1746) og Anordning um stúdenta þá, er prestar ætla að verða og próf þeirra (3/s 1743). Með þessum lagaboðum er stofnað til mikilla breytinga og umbóta á skólalærdómi, og til þess stofnað, að koma meiri festu á alt skóla- haldið. Eftir þetta fer saga skólanna að verða skýrari og fyllri en áður. Upp frá þessu tekur veldi biskup- anna yfir skólunum verulega að réna, en stiftamt- maður tekur nú drjúgan þátt í stjórn skólanna, fara nú bréfaskriftir milli þessara umsjónarmanna að verða tíð, og má af þeim bréfum fá all-glöggva hug- mynd um allan ytri hag skólanna, einkum Skálholts- skóla, og nokkrar bendingar um kenslu í skólunum og skólalífið sjálft, einkum þó, þegar eitthvað fer af- laga, eða þegar um breytingar er að ræða. Skólabæturnar, sem skólatilskipunin ætlaðist til að yrðu, urðu að vísu minni en til var ætlast og stuðluðu 5rms atvik að því. Biskupar þeir, sem skip- aðir voru eftir burtför Harboes héðan úr landi, þeir Halldór Brynjólfsson og Ólafur Gíslason, voru naum- ast menn til að koma á stór-breytingum, enda áraði ekki til þess, hvorki fyrir þá né eftirmenn þeirra. Harðindi og óhöpp dundu yfir landið hvað ofan í annað á síðari hlut 18. aldar. Fyrst gengu hér mikil harðindi milli 1750 og 1760, og eyddist þá mjög bústofn manna, einkum í Hólaslifti, svo kom fjár- kláðinn og gekk yfir landið um 20 ár (1761 —1779).

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.