Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 27

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 27
IÐUNN Um flutning latínuskólanna. 185 nytsemi jurtanna, og þeim sem útskrifast, nauðsyn- legustu atriði yfirsetufræðinnar. Hugsar hann sér að fjórðungslæknirinn í Norðurstiftinu gerði hið sama á Hólum; býst hann þó við, að þessu verði ekki við komið. Telur hann því æskilegast, að komið væri upp hér á landi námsstofnun (seminarium), þar sem hin æðri vísindi séu kend. Landsnefndin sjálf er á því, að Reykjavík verði höfuðstaður landsins, og að þangað flyttist landsyfir- rétturinn og lögmaður, þá mundi það og hagkvæmt að Skálholtsbiskup og Skálholtsskóli flyttist til Reykja- víkur eða þangað í grendina. Þá kemur hún og með þá tillögu, að sökum landsföðurlegrar umhyggju konunungs fyrir íslandi væri það maklegt, að Reykja- vík væri nefnd Kristjánsvík og Akureyri (0 jord) Kristjánsfjörður. Þessar tillögur og aðrar fleiri benda til þess, að fjölfræðisstefna og nytsemdarstefna þessara tíma er farin að teygja upp höfuðið hér á landi, og að sá slormur er í aðsigi, sem skömmu síðar feykti stólum og skólum til Reykjavikur. Þegar afráðið hafði verið, að ílytja Skálholtsskóla til Reykjavíkur, ritaði Ólafur Stephensen frá Innra- Hólmi, tillögur um að sameina Hólaskóla skólanum sunnanlands. Telur hann líklegt að einn skóli í Reykjavik, muni reynast landinu gagnlegri en tveir skólar, eins og nú hagi til. Fjársýki, eldgos og harð- æri hafi komið stól og skóla á fallanda fót, og muni verða að hlaupa undir bagga með drjúgu fjárfram- lagi úr konungssjóði, eigi ekki alt að hrynja um koll. En við sameining skólanna gerir hann ráð fyrir að nægt fé muni fást, til að gera hinn sameinaða skóla fullkomnari en skólarnir hafi hingað til verið hér á landi, og að ráð muni verða á, að skipa 3 kennara við skólann í staðinn fyrir 2 sem áður hafi verið. Nefnd sú sem þá sat í Danmörku og var að fjalla

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.