Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 29

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 29
iðunn Um ffutning latínuskólanna. 187 málið eigi ljúfar. Þeir segja að Hólastóll og skóli séu æfagamlar stofnanir, sem reistar haii verið og haldið við af gjöfum góðra manna, og þykir þeim það auð- sjáanlega sýna litla ræktarsemi, að leggja niður stofnun, sem þannig sé tilkomin; þeim þykir það eigi heppilegt, að Reykjavíkurskóli sé gerður að einka- mentastofnun alls landsins; þá verði þess að gæta, hversu örðugt það sé fyrir skólasveina sumstaðar úr Hólastifti að sækja skóla í Reykjavík, og þótt hagur Hólaskóla sé nú erfiður, muni inega rétta hann við, þóknist konungi að veita til þess fram undir 3000 rd. styrk. En sé sú tilætlunin að auka skólalærdóm í Iandinu, þá megi eigi síður setja lektor á Hólura «n í Reykjavík. Stiftamtmaður sendi Cancellíinu nú þetta álitsskjal þeirra amtmanns og biskups, og leit- ast jafnframt við að hrekja mótbárur þeirra gegn skóla-sameiningunni. Hann játar það, að skóli hafi lengi staðið á Hólum, en eigi sé það sönnun fyrir því, að haganlegast sé, að hann sé þar um aldur og æfi. Ekki verði heldur sagt að Reykjavíkurskóli fái einkaleyfi til að kenna skólalærdóm, þótt Hólaskóli sé lagður niður, meðan öðrum sé ekki bannað að kenna skólalærdóm, og þó að stólsjarðirnar hafi upp- runalega verið gefnar stólnum, þá hafi konungur vald til að skipa fyrir um þær á þann hátt, seui hann telji að mestu gagni megi verða. Lítið gerir hann úr erfiðleikunum tyrir skólasveina úr Norðurstiftiuu að sækja Reykjavíkurskóla, þeir séu ekki öllu meiri en fyrir þá sem lengst eiga að sækja úr Skálholtsstifti. Loks hefir stiftamtmaður litla trú á, að fjárstyrkur sá, sem þeir nefna, muni nægja til að rétta skólann við og er hræddur um að aftur geti sótt í líkt horf og verið hafi, og sömu vandræðin, sem verið hafi með skólahaldið, muni aftur steðja að. Næstu árin er skólamálið á hrakningi milli stjórn- arinnar og nefnda þeirra, er skipaðar voru til að

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.