Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 31

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 31
IÐCNN Um flulning latínuskólanna. 189 um þeim, sem út af þeim spunnust, og verður því að eins drepið á einstök atriði málsins. í skýrslu þeirra Stephensens og Vibe um skólana hér á landi segja þeir svo um kennarana, að þeir hafi síðari árin flestir annaðhvort verið lasburða eða nýlega úlskritaðir úr skólunum hér á landi, og ekki nema hálflærðir unglingar, er lítils hafi verið af að vænta. Um lærdóminn í skólunum farast þeim þannig orð, að flestir komist ekki lengra í latínunámi en það, að þeir hafa farið yfir nokkrar æfisögur í Nepos, og ef til vill hafi þeir lesið nokkrar bækur í Eneasar- kviðu Virgils eða jafngildi þeirra; þó geti þeir hvorki þýlt þetta á viðunanlegt íslenzkt mál, né gert grein fyrir skáldfegurð né efni kvæðanna. Stundum hafi og verið farið lauslega yfir bréf Ovids frá Pontus en um fjölda mörg ár hafi ekkert verið lesið eftir Horats. Peir séu taldir hæfir til að ná burtfararprófi sem komist svo langt í því að snúa íslensku máli á latfnu, að þeir geti annaðhvort af eigin ramleik eða með annara hjálp gert latneskan stíl lausan við stór- feldar málfræðis- eða setningarfræðisvillur, þótt frá- sneiddur sé hann latneskum málblæ, en sniðinn eftir norrænu máli. Hinir linustu nái ekki einu sinni þessu marki, heldur séu stílar þeirra fullir af málvilium, og þó sé mestum skólatímanum varið til latínunáms. Lítið segja þeir að skólasveinum hafi verið íþyngt með grískunámi. Á siðari árum liafi stúdentaefnin átt að fara yfir nokkurn hluta Nýjatestamentisins á grísku. En komi lærisveinninn einhverju nafrii á að þýða fáein vers úr grísku á latínu í tíma, þá þyki vel að verið, hvort sem sú þýðing hafi verið heima gerð eða upp úr bók undir borði sveinsins eða í hendi sessunautar hans. Lítið séu lærisveinarnir spurðir um föll, tíðir, stofna og rætur orðanna. Peir sem lengst hafi komist, hafi farið yfir mest alt Nýjatestamentið, aðrir aðeins 8/r kluta þess, og þeir

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.