Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 52

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 52
210 Magnús Jónsson: iðunn upinum. En hann svaraði: »Ég skal gjarna fallast á það að örn Jóhar.nesar geri þetta ekki, ef uxi Matte- usar má gera það í staðinn«. Ermarnar hafa oft og einatt verið alt annað en notalegar. Enskar ermar frá 11. öld eru sýndar á 5. mynd, og síðan hafa svipaðar hengiplöntur aftur og aftur átt þátt í að festa sig á ermum fólksins, ekki aðeins kvenna heldur líka karla. Oft hafa þær líka verið ákaflega víðar í opið og með miklum laufaskurði, sem hefir orðið til þess að heilagir menn hafa séð tungurnar breytast í eldtungur, sem hafa svelgt þessa spjátrunga í sig. í dönskum þjóðvísum er Dagmar drotn- ing látin kvarta yfir því eftir dauðann, hve þröngar hún hafi gert ermarnar, jafnvel í guðs húsi, og hefnist henni núfyrir. Pað var því vandratað meðal- hófið. Éröngu ermarnar voru mikið kvalræði, og þessi fórnarlömb skarts- 5. mynd. ins urðu að halda höndunum í sömu stellingum, að ég nú ekki tali um það, hvort þær gátu nokkra björg sér veitt. Þá fer nú að nálgast sjálft höfuðið, þetta mesta djásn mannlegs líkama. En þó er hálsinn á milli, og hann fór ekki alveg varhluta af píningunum. Hann hefir oft kvalist af kulda þegar það þótti við eiga að hann sæist sem bezt. Á okkar dögum hefir það sést, að hálsinn verður að þola frosl og vosbúð, en hlýr skinnkraginn flaksast langt út á herðarnar. Og hann hefir oft bakast og sveitst innan í dyngju af dún og loðskinnum í hlýju veðri, þegar tízkan hefir heirntað að »búanum« væri marg vafið upp undir eyru. En aðal píslarfærið á hálsinn var spánski kraginn, harðstrokinn léreftskragi (prestakragi), ákaflega stór

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.