Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 60

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 60
218 Friðrik Friðriksson. IÐUNN um öldum; hann varð mér sem ímynd sögunnar með bylgjum og sveipum kynslóðalífsins. Ég stóð þar grafkyr í góðan hálfan tíma í mikilli andlegri nautn. Loks reif ég mig með valdi lausan og fór yfir brúna og gekk áfram, með fram upphlöðnum bökk- unum fram hjá mörgum brúm. Hafði ég Tiber á vinstri hlið en á hægri hlið voru mörg stórhýsi, varð mér einkum starsýnt á Palazzo di Giustizia afarstórt hús með mörgum myndastytlum að framan, og Castello di s. Angelo, hið mikla grafhús Hadrians keisara. Síðan beygði ég frá Tiber og áður en ég vissi af var ég kominn inn á hið hringmyndaða svæði, Piazza di s. Pietro. Á miðju svæðinu stendur afarmikill Obeliski og sinn til hvorrar hliðar tveir stórir gosbrunnar, er gjósa afarmiklu vatni. En beint fyrir framan mig reis upp tramhliðin á sjálfri Pét- urskirkjunni. í fyrstu fanst mér ekki til um stærð hennar, en seinna komst ég að raun um, hve mikið það hús er. Ég skal ekki reyna að lýsa henni. Ég læt mér nægja að segja aö ég sá fljótt að ekki veitti af nokkrum mánuðum til þess að skoða hana dag- lega, ef takast ætti að sjá hvað eina til hlýtar. Ég vil heldur ekki rej'na að lýsa tilfinningum mínum er ég dvaldi í þessu mikilfengasta musteri Guðs kristni. í 11 daga var ég í Róm og var mér hver dagur- inn öðrum Ijúfari. Ég var eins og í draumi eða leiðslu. Ég hagaði mér ekki að neinum »turista«sið ; valdi mér fáa ákveðna staði til þess að skoða, en lét hitt eiga sig. Eg var hér um bil alt af einn og fór mér hægt að öllu, en naut þess betur lífsins. Ég átti hina ágætustu daga á hótelinu; fólkið var gott og alúðlegt, og vildi alt gera manni til hæfis. Hver dagurinn var öðrum unaðslegri. Sólskin næstum því á hverjum degi, að eins einn dag síðdegis var stór- feld rigning. Einu vonbrigðin voru þau að hitinn var

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.