Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 74

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 74
232 Helgi Pjeturss: IÐUNN hefir verið gert á einhverju rannsóknarsviði, og drengskap til að viðurkenna það, mun sjálfur jafn vel gera eða betur. 19. des. ’23. Visnakver Fornólfs. 1923. Ársæll Árnason. Myndir ettir Björn Björnsson. Að ýmsu leyti er þetta merkilegasta Ijóðabókin, sem komið hefir á islenzkan markað um nokkurt skeið. Nýtt skáld kemur hér fram, en ekki eins og tiðkast nýtt skáld með fálmi og fumi viðvaningsins og hálfleik ung- lingsins. Hér bendir nafnið Fornólfur á, að karli þeim muni vera grön sprottin, og kvæðin eru ekki heldur lengi að segja til sín. En ofan á það bætist, að Fornólfur er helzt til stórskorinn og auðkennilegur til þess, að geta leynst á ekki stærra heimili en ísland er. Kvæðabók þessi er algerlega mótuð af hinum stóru sögulegu kvæðum, sem taka upp mestan part hennar. Eru smærri kvæðin aftan til í bókinni þó engan veginn léleg. Eldheit ættjarðarkvæði eru þar, ort í hitanum 1907. Kann- ast ég þar við kvæði, sem ég las þá í blaði og vissi ekki um höfund að fyrr en nú er ég rekst á það hér hjá Forn- ólfi. En eitthvað hefir fest kvæðið svo í huga mér, því að annars er ég ekki minnugur á slík blaðakvæði að öllum jafnaði. — í öðru kvæði er þessi vísa, er mér þykir lýsa miklu vandlæti fyrir fósturjörðina:

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.