Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 75

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 75
IÐUNN Ritsjá. 233 Standi fyrr i einum eldi allur barmur þessa lands en það lúti annars veldi eða kúgun harðstjórans; fyrr skal hyrr um rjáfrin rjúka og rofin hrynja’ i tóftirnar, brend til ösku fjöllin fjúka og flæða yflr rústirnar. Býst ég við að nokkur leitun sé á öllu meiri hita og krafti, en í þessari vísu. Voþna Teitur og Einar sjór verða ó- gleymanlegir eftir að Fornólfur heflr dregið þá uþp og hlýlegar verður varla ort, en hann kveður til »Minnu« sinnar gömlu. Rúmið leyfir ekki að geta hvers eins, en ekki má ganga alveg fram hjá hinu snildarlega latinu- kvæði til G. M. og enn þá snildarlegri jþýðingar. En sögukvæðin eru það, sem bera bókina uppi: Björn Guðnason og Stefán biskup, Ögmundur biskup á Brimara Samson, Visur Kvæða Önnu og Mansaungur Svarts á Hof- stöðum um Ólöfu Loptsdóttur, þessi kvæði eru hvert öðru ágætara að rimsnild, efnisvali, sögulegum blæ og meðferð allri. Slik kvæði yrkir enginn nema hann sé bæði skáld og visindamaður. Pað er eins og andi að manni einhverj- um gustí langt framan af öldum. Fornólfur hefir virkilega dvalið þar langdvölum, hann þekkir þetta fólk og þann aldaranda sem það lifði við, og kemur með persónuleg boð frá þeim. Mansöngurinn um Ólöfu er lengstur (yfir 40 bls.) en visur Kvæða-Önnu eru ef til vill allra beztar kvæðanna frá upphafi til enda, þótt þær séu stytstar. Forspjallsorð II er afbragðs kvæði, og lýsir höfundinum, kærleika hans á hinum fornu yrkisefnum og æflstarfl hans svo meistaralega, að varla verður fram úr komist. Pro- logus að Birni Guðnasyni og Stefáni biskupi er einnig afburða vel gerður og lýsingarnar skarplegar. — Væri gaman að skrifa um þessa bók langt mál ef húsrúm Ið- unnar væri meira en er. Bókin er prýdd mörgum prýðilegum pennateikningum eftir Björn Björnsson gullsmið. Pað er ekki heiglum hent að draga með penna svo vel fari, en Birni hefir ekki orðið

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.