Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 5

Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 5
IÐUNN Nesjamenska. 195 náttúrlegu onsökmn, að kotþjóð er aldnei sýnt um að taka á viðfangsefnum á stórmannlegan hátt. En í þetta ainn var það þó óneitanlega dustað upp, sem drottni og þjóðskipulaginu mátti helzt að gagrá koma („Drottinn“ notað hér samkvæmt málvenju Morgunbl.). Dagblaðið Vísir flutti dag eftir dag hnausþykka trúhræsnina og lék sér að félagslegum heigulshætti lesenda sinna eins og köttur að mús. Það var mikil íprótt, drýgð í intá- legustu hjartans gleði fáfræðinnar. Morgunblaðið fékk sánkti Guðrúnu sína, blessunina, til þess að gefa yfir- lýsingu um pað, hvernig tiltekjur öreigarí.lsins mældust á pann hhnneska kvarða, — hinum megin frá. Það var hroðaleg útkoma. Og hin fróma kvinna lét pess getið, til rnarks um bölmóð bolsanna, að sér hefði verið svarað um „jafnvel trúleysi" (Mgbl. 17. ág.). „Hver.su lengi kann sá fordjarfaði heimur að standa!“' En þrengingar hinna frómu létu sig ekki án vitnis- burðar í góðum verkum nú heldur en endranær. Þó að' selja yrði bolsana Satan á vald til tortimiingar holdinu, eins og ritningin mælir fyrir, þá varð þó að gera til- raun til þess að bjarga börnunum, blessuðum sakleys- ingjunum. Og til pess að herða pau til skynsamJegs lif- ernis í pessari Sódóma jafnaðarstefnunnar, var nú efnt til berjaferða og kaffiveitinga undir umsjá góðra mannai út um alt Þingvallahraun. Nesjamenskan horfði klökk á eftir kassabílunum og viknaði yfir altumfaðmandi góð- leika síns eigin innrætis. En krakkarnir drógu að sér hneina loftið og ærsluðuist með fullkomnu virðingarleysi. f'yrir pví, að parna var verið að bjarga sálum peiriia.. Þetta, sem hér hefir verið drepið á, eru að eins mein- faus smáfyrirbrigði. Þau vitna um óhollustuna. En pau «ru pó ekki sjálf pestin, eitruð og banvæn, sú, er diep- ur hverja hugsun og slær hvern vilja með lömun. Með

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.