Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 85

Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 85
IÐUNN Kreuger-æfintýrið. 275- ana byggist á hjátrú almennings — peirri hjátrú, er sér pappírsdyngjurnar vaxa og heidur, að þar.na sé verið aiö skapa verðmæti til viðurhalds lífinu. Bankinn getur greitt vexti og arð af hiutabréfum nákvæmlega jafn- lengi og almenningur heldur áfram að tæma pyngjur síinar í hann. Bankinn gefur út ávísanir á raunverðmæti samfélagsins á meðan það trúir honum fyrir þvi starfi, en ekki degi lengur. Sjálfur framieiðir hann ekkert - ekki einu sinni pappírinn, sem hann skrifar tölur sínar á- Víðkunnur danskur fjármálafræðingur, L. V. Birck prófessor, skrifaði skömmu eftir dauða Kreugers grein, er hann nefnir „Gullgerðarmenn“. Þar segir hann meðal annars: -----Og samt sem áður — það eru slíkir men-n, sem okkar grunnhyggna öld dáir — þessi öld, sem vill verða rík án fyrirhafnar; slíka menn nefnum við „kónga“ og hetjur og líkjum þeim við þau stórmenni sögunnar, er skóþu voldug riki — olíukóngar, járnkóngar, togleðurs- kóngar. Enginn fæst til að fletta af þeim grímunni, og ]>ó eru bnellur þeirra áva-lt eins, hvort sem þeir eru að’ ginna almenning til að kaupa verðbréf sín eða að' svindla með þau á kauphöllunum. Þessa menn, sem eiga. það eitt áhugamál að halda pappírsverðmætunum uppi, s-enda ríkin á alþjóðaráðstefnur sem fulltrúa sína. Eitt liggur þeim á hjarta: að bjarga pappirsdyngjunum,. helzt m-eð útboði nýrra pappírsbunka — og það á tíim- um, sem þarfnast einskis m-eira en að eldur sé boriinn að pappírshlaðanum. Að ráðum þessara manna ko-ma rikin til hjálpar með þá merkilegu tegund sósialásma,. að ábyrgjast það, s-em -ekki er til, eða að „þjóðnýta töp- in“. En við höldum áfra-m að liggja á knjánum fyrir arf-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.