Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Qupperneq 65
IÐUNN
Kreuger-æfintýrið.
255
samkeppni á erlendum markaöi og auka söluna. En ut-
an við samsteypuna stóðu enn nokkrar verksmiðjur, sem
gerðu henni ýmsar skráveifur á markaðinum. Jönköbing
var að visu lang-öflugasta eldspýtnafyrirtæki í Svíþjóð,
er. þó ekki nægilega öflugt til þess að kremja í smátt
þessar óháðu verksmiðjur eða kúga þær til hlýðni.
Svo kemur Ivar Kreuger árið 1913 og sameinar þess-
ar óháöu verksmiðjur í eitt félag, Hinar sameinuðiu
sænisku eldspýtnaverksmiðjur, í þeim ótvíræða tilgangi
að hefja hlífðarlausa samkeppni við hina öflugu Jön-
köbing-samsteypu.
Frá því ári tekur samkeppni-baráttan á sig nýjan svip,
og sænska eldspýtnaiðjan er í raun og veru komin inn
á aðra braut. Áður voru það gæði eldspýtnanna og
verö:, sem rnest var undir komið. Nú varðaði miestu að
skipuleggja sem fullkomnast sölukerfi og troða sér
fram á markaðinn með auglýsingum og viðskiftalegum
kænskubrögðum. Tvö sölufélög, sem hösluðu hvort öðru
vö 11 á heimsmarkaðinum í óvægri samkepimi, uxu upp.
Og þaö, sem þau fyrst og fremst þurftu, var aukið fjá'r-
magn. Slagurinn stóð ekki lengur á framleiðslustaðnum
—• í verksmiðjunum — um vöruvöndun og lágt verö,,
heldur snierist baráttan meira og mieira um þáð, hvor-
um gæti tekisit að soga til sín mieira fjármagn til þass
að ryðja sér rúm á markaðinum. 1 j>essari fjármálabar-
áttu reyndist Kreuger Jönköbing-samsteypunni ofjarl.
Félag hans færðist í aukana með liverju ári og vann
dyggilega að því að grafa grunninn undan keppiniautn-
uim. Þar kom, að Kreuger tókst að sameina alla eld-
spýtnaiðju Svíþjóðar, og nú sat hanr, sjálfur við stýrið.
Þetta gerðist á stríðsárunum.
Með sigri Kreugers má segja, að gagngerð breyting
verði á starfseminni allri. Framleiðsl u-grundvöl 1 urinn,