Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Qupperneq 17
IÐUNN
Nesjamenska.
20 T
Nú er að vísu ekkert við því að gera, ])ó að snotrir
piltar, eins og Guðm. Friðjónsson, ergist svo með elli
við hreppapólitik og einangrun, að um þá skifti. Á þetta.
er aðeins bent sem dæmi þeirrar viðurstygðar, er
skiftingarnir rjúka upp og taka að stýra umræðum uim.
opinber mál, hvenær sem atvinnuþróunin skolar hér á.
Land nýrri hugsun — eða riýtilegri.
En Guðm. tókst ekki að kveða niður bersöglina
um „feimnismálin", sem ekki var við aÖ búast. Borgara-
stéttin íslenzka þyrfti minna að drekka af veronal og
bromkaiíum til þess að sefa með taugar sínar, ef
hún léti sér skiljast, hve lítið vinst á með predikunum.
yfirieitt. Hún ætti nú að þekkja það úr sinurn eigin
herbúðúm, að því er snertir trúarlífið. En því miður á
þetta einnig við run þá, sem predika „bolsévisma" og
„hættulegar" skoðanir. F>að þarf meira til að bneyta
skipulagi og mönnum, meðal annars alvöm, fárn. og.
mikio shyf.
Nú gerist sá atburður, að Guðm. Kamban hefir
samflot við Kiljan um „ósiðlega" bók — af hendingu.
Um þá bók hefi ég áður ritað í þetta tímarit, og skal
það ekki tuggið upp hér. Mér finst Kamban missa
marks um viðfangsefnið, en rétta þó allvel hlut sinn í
síðara bindi. Ástafar þeirra Daða og biskupsdóttur fanst
mér, satt að segja, svo nauða-ómerkilegt, en þó jafn-
framt sjálfsagt, að ekki þyrfti uon að ræða. Ég er einn
þeirra manna, sem rekja upphaf sitt til þessarax hvatar,.
sem íslenzk dygð má ekki heyra nefnda. Þess vegna
er mér t. d. alveg ómögulegt að trúa því, úr því þeasi
„tigna" kona átti barn í Bræðratungu, að Daði hafi
ekki gert annað en halda, í hönd henni, blimskaka aug-
um og andvarpa, til þess að svo mætti fara. Ég býst
meira að segja við, að veruleiikinn hafi verið þar fult.