Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Blaðsíða 54
244
Hálf pappírsörk.
IÐUNN
rá5a nýja? Lyfjabúðin. Hm! Það syrtir! Mjólkurfélagið.
Hér er pöntuð gerilsneydd mjólk.
Grænmetissali, slátrari o. s. frv. Innkaupin eru gerð
símleiðis. Þá er húsfreyjan ekki á sínum stað. Nei, hún
iiggur veik.
Það, sem á eftir fór, gat hann ekki lesið, því að nú
dimmir honum fyrir augum eins og drukknandi manni,
sem reynir að sjá upp gegnum saltan sjóinn. En þarna
stóð: Otfararskrifstofan. Það hefir sina sögu að segja.
Ein stór og ein lítil, kista er undirskilið. Og í svigum
var skrifað: af dufti.
Meirá stóð ekki á örkinni. Duft var síðasta orðið, og
þannig fer það.
Hann tók blaðið, kysti það og stakk því í brjóstvas-
ann.
Á tveim minútum hafði hann lifað upp tvö ár æfi
sinnar.
Hann var ekki bugaöur, þegar hann gekk út, heldur
bar hann' höfuðið hátt, eins og maður, sem er sáttur
við lífið, því að hann fann, að þrátt fyrir alt hafði hann
átt hið fegursta. Hversu mörgum hafði aldrei hlotnast
slíkt.
Sub. Sigtirjónsson þýddi.