Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Qupperneq 9
IÐUNN
Nesjamenska.
199
heirasóknir og fallbyssuhviin handa kúltúrsnobbunum.
Petta er það, sem á máli siðsamra borgara heitir að
komast í menningar- og vináttu-samband við sér meu'i
þjóðir.
Með þessa fjáirmála- og viðskifta-þróun í baksýn
verður að skoða opinberar umræður um menningar-
mál á íslandi. Pessi þróun hefir rofið þá hulu, sem
fyrrum lá um raunverulega stéttaskiftingu þjóðarinnar,
og fylkt henni í tvo mjög greinilega afmarkaða hópa,
sem búa við afar-misjafna aðstöðu. Það knýr að
minsta kosti þann hlutann, sem miður er setiur, til
nýrrar gagnrýni um rök og orsakir ástandsins, hinn til
andófs og bolabragða. Annar er spurull og breytinga-
gjarn, af því að hann þjáist. Hinn sljór, værukær og
bakstigull — en grimmur, ef honum er stuggað upp úr
værðinni af nærgöngulum allsleysingjum. Hann byggir
tilveru sína á hjátrú, vana og úreltum trúar- og sið-
gæðis-hugmyndum — að ógleymdum oddborgaraskap
og hræsni.
Sjálfir trúa postular hins mienningarlega andspyrnu-
liðs ekki á helminginn af þvi, sem þeir hafa fyrir
vönd á fróman og fáfróðan „lýðinn". Það veit ég af ára-
löngum kynnuin við suma þá pennaliprustu.
III.
Á vettvangi islenzkra bókmenta hafa margir atburðir
gerzt skemtiliegir hin síðari ár. Þar gætir þeirra lireyf-
inga, sem með þjóðinni bærast, gleggra heldur en
annars staðar.
Læknisfræði og bókmentir eiga um það svipaða að-
stöðu, að til skamms tí'ma stunduðu menn áhyggju-
lausir hvorá tveggja mentagrein í þeirri trú, að þeir
störfuðu að framsókn mannkynsins í sátt og friði við