Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Qupperneq 24
214
Heimskreppan.
IÐUNN
jrað og gert að markaðsvöru. Jafnve! vatnið kaupa menn
oig selja. Af skynjanlegum náttúrugæðum er paö varla
annað en andrúmsloftið og sólarljósið, sem ekki gengur
kaupum og sölum, og sæi auðvaldið nokkur tök á að
handsama þetta tvent og gera að verziunarvöru, myndi
það verða gert tafarlaust.
JÞessi auðnámsstarfsemi verður stöðugt að halda
áfram og færast í aukana, ef vel á að fara. Það verður
aö hafa auga á hverjum fingri eftir nýjum möguleikum
til auðnáms og framtaks, nýjum fyrirtækjum, sem
hægt er að leggja fé í og lofa auðmagniniu sæmilegum
arði. Samtímis blómgast svo viðskiftin, alt frá þeirri
nauðsynlegu og heiðarlegu starfsemi, er annast um
dreifingu varanna út á meða! fólksins, sem þarfnast
þeirra, upp í svindilbrask kauphalianna. En upp af við-
skiftunum spretta pappírsverðmætin, skuldabréfin af
hverri tegund, snikju-auðmagnið, sem vikið var að í
fyrra hluta þessarar greinar. Á grunni framleiðsltunnar,
sem líf manna og afkoma byggist á, rís nú geyisihá
yfirbygging peningaviðskifta, lánabrasks og skuldasöfn-
unar, er að síðustu getur enclað með að kremja alt í
rúst undir ofurjmnga sínum.
Undan slikum örlögum er auðvaldsheimurinn í raun
og veru, stöðugt að flýja. Sá flótti tekur á sig mynd
enn aukinnar útþensluviðleitni, snýst upp í þrotiausa og
ákafa leit eftir nýjum leiðuni, nýjum farvegum, er
auðfmagninu verði beint í. Þar kemur, að auðmagnið
hefir numið átthaga síina að fullu — eða svo tii. Auö-
valdið finnur, að skórinn tekur að kreppa að því, flestir
möguieikar erul þegar nýttir, farg snýkju-auðmagnsins
legsf á æ þyngra, atvinnulifiö stynur undir vaxtabyrð-
unum. Áður en varir er svo komið, að litlu verður um
Jiokaö; fjármagnið liættir að gefa þanm arð, sem auð-