Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Qupperneq 82
272
Kreuger-æfinlýrið.
IÐUNN
vinna taflið, mátti félagið aldrei láta finna á sér neinn
bilbug. Arðgreiðslunum varð að halda í horfinu og
helzt að auka þær, þrátt fyrir krsppur og fjárhagslega
óáran. Við hvert nýtt útboð hiutabréfa — og Kreuger
lét skamt höggva milli reið á því, að arðfíknir eigna-
menn gleyptu við hverju bréfi jafnskjótt og þau komu,
á markaðinn. Því var það, að Kreuger og nánustu
bandamenn hans urðu sjálfir hvað eftir annað að kaupa
upp Kreuger-verðbréf, eftir margvíslegum krókaleiðum,
til þess að varna þvf, að nokkr.r snepill væri boðinn
fram án þess að hann fynrli kaupanda og gengi bréf-
anna á káuphöllunum gæti haldið áfram að hækka.
Við rannsókn þá á fjárbraski Kreugers, sem nú fer
frain, koma stöðugt ný kurl til grafar —• glæfrabrögð,
sem varða við lög og myndu hafa komið smámönnum,
i steininin. Og eftir því sem rannsókninni miðar lengra
aftur í tímann, koima í Ijós eldri og eldri klækir. Það er
augljóst mál, að Kreuger hefir frá því fyrsta og án þess
að láta sér bregða notað öll þau meðul, er máttu verða
honum og félögum hans til hugsmuna eða gátu vafið
héðni blekkinganna fastar um höfuð almennings. Senni-
lega nær „fjársvika“-ferill hans jafn-l,angt og félagið
Kreuger & Toll hefir verið til eða lengra aftur í tíimann.
En hin stöðuga útþensla og fjölbreytni starfseminnar og
heppnin, sem fyigdi honum lengi vel sökum klókinda
hans og dugnaðar, gerðu honum fært að leyna klækjun-
um og þurka út þau spor, er sýndu hver hann var —
þangað til síðustu árin, að starfsemi hans gerðist svo
flókin, víðgreind og tröllaukin, að hún sýnist hafa vaxið
honum yfir höfuð. Og svo kom kreppan mikla og rak á
smiðshöggið.
Árið 1925 setti Kreuger á laggirnar fyrstu bankastofn-
,un sína. Það var hollenzkt hlutafélag og hét Gara.nta.