Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 13

Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 13
UÐUNN Nesjamenska. 203 vottur borgaralegs frjálslyndis á íslandi, húmanismi binna fyrstu söddu og sæmifega klæddu borgara í niargar aldir. Að öðrum þræði átti petta frjálsilyndi ;sínar sálfræðilegU rætur í þeirri fákænu trú, að elfur stríðsgullsins héldu áfram að rcnna hingað rauðar og jrungar um aldur og æfi, að aldnei kæmi tii verulegra átaká við örbjargamennina, að nýir gróðavænlegir at- vinniuvegir héldu áfram að soga f>á upp í sig. Af þessu frjálslyndi er nú ekki sneíill tii lengur í borgarastéttinni. Henni hélzt alt of raunalega á hinum skjóttekna gróða til þess að hafa ráð á slíku til frambúðar. Átökin við öreigana tóku að gerast veruleiki. En sá hluti verka- lýðsins, sem notað hafði samtök sín þessi árin til þess aið rífa sig upp úr sultarfeninu, hiefir nú tileinkað sér þettá frjálslyndi að nokkru leyti. En þetta skammvinna vor borgaralegs húmanisma edgnaðist sinn postula og ljóðasvan. Pað var Davíð Stefánsson. Hann er hvorki umbötainaöur né spámaður. En hann er dillandi Ijóðrænn í hugsun og umburðarlyndur1 lýðsinni. Borgurunum stendur enginn stuggur af kvæð- um hans: götumyndunum, samúðinni með betlaranum, skækjunni, flækingnum, einyrkja landnemanum. Og það væri líka alveg ástæðulaust. Davíð Stefánsson er ekki að fylkja þessu allslausa liði saman með básúnuhljómi til' geigvænlegrar baráttu. Hann klappar þvi bara á kollinn og segir því, að það sé eins vel innrætt eins og þeir, sem fínni beri flíkurnar. Þetta átti alveg við tíðar- andann — ásamt stúdentamærðinni, brennivínsdýrkun- inni, þjóðsagnaspekinni í kvæðum Daviðs, enda hefir hann orðið ástsælastur íslenzkra skálda á si;nni tíð. Sjálfrátt eðtt ósjálfrátt hiefir Davíð komist upp á lag með það, að gera barnagælur við áleitnustu sjálfsblekk-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.