Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 25

Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 25
IÐUNN Heimskreppan. 215 mennirnir eru ánægðir meö. Þá er kominn tíimi til þess að skirna út fyrir heimahagana. Hungrið vaknar — eftir nýjum athafnasviðum, Jþar sem olnbogarúmið er frjálsara og arðvonin meiri. Þróun framleiðslunnar legst auðvitað á sömu sveif. Fmmleiðslan er ekki auðmagnið, eins og stundum heyr- ist gefið\ i skyn, en auðmagnið hvílir á framleiðslunni; hún verður að bera það uppi. Hún má því ekki dragast aftur úc í vexti, ef vel á að fara. Auðnumið land vierður stöðugt að auka framleiðslu sína og vörumagn — ekki svo mjög til að fullnægja þörfum fólksins, sem byggir landið og að framleiðslunni vinnur, heldur til þess að framleiðslan geti risið undir þeim byrðum, sem á henni hvila. En nú er það ekki nóg, að framleiða vörur í sie;m stærstum mæli. Vörurnar verða líka að seljast — og seljast með hagnaði. Ef markaðina þrýtur heima fynir, verður að ieita þeirra annars staðar, vinna þá og halda þeim. Og þá er nú ekki amalegt að geta búið svo um hnútana, að óvelkomnum keppinautum verði bægt frá, svo maður fái að sitja að hlunnindunum einn og ó- áreittur. Alt ber þetta að sama brunni. Og er nú koimið að undirrótum þeirrar græðgi til landa og markaða, sem hefir einkent pólitik iðnaðarstórveldanna á siðustu öld- Um, Það, sein meira en nokkuð annað hefir markað svip hinnar sögulegu þróunar nú urn langt skeið, er eininitt kapþhlaupið um nýlendur og markaði, baráttan íýrir útþenslu auömagnsins. II. Alt fram að síðustu aldamótum voru Evrópuþjóðirnar að nema ný lönd, vinna nýja markaði. Ameríka, Ástralía, SuðUr-Afrika, svo að nokkur séu nefnd, voru

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.