Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Page 34

Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Page 34
224 Heimskreppan. IÐUNN —■ myndu annast um þá útrýmingu sjálfra sín og þá ringulrei.ð atvinnulífsins, sem í þesisiu falii er nauðisyn- leg til þes,s að auðvaldið korni ár sinni fyrir borð. En sú von er fánýt — vegna þess, hve Kínverjar eru siein- virkir og aðferðir þeirra við að drepa hver annan gam- aldags. Ekkert er líklegra en að iöngu áður en jarð- vegurinn í Kína er nægilega undirbúinn fyrir skefja- laust svigrúm auðmagnsins muni barátta sú, sem nú ér háð í hinum vestræna heimi um örlög sjálfs auðvaids- skipulagsins, verða á enda kljáð. Pað eru því litlar líkur til þess, að Kína eða Indland geti orðið pær hjálparhellur, er fleyti auðvaldiniu yfir kviksyndið. Aftur hvarfla augun að rússnesku ráðstjórn- axríikjunum. Með sigursælli styrjöld á hendur Rúsisum væri tvær fiugur slegnar í einu höggi: Rauða vofan, sem blandar dagana heizkju og ugg fyrir auðvaldinu og ríður þvi í draumi, yrði kveðin niður kannske fyrir fult og alt. 1 öð'ru lagi væri unninn heill heimur lit áð þcnja sig yfir og dómsdegi þar með skotið á frest um óákveðinn tíma. Horfurnar eru glæsilegar, ef fyrirtækið skyldi heppnast. En auðvaldsheimurinn geng- ur þess ekki dulinn, að á þessari leið eru torfærur margar og stórar. Uppreistarhættan heima fyrir er al- varleg, og alt skrafið og rekistefnurnar um frið og af- vopnun gerir hana sízt minni. Og eftir því sem upp- byggingu sovétríkjanna miðar áfram, því meir seim þau færast í aukana atvinnulega og fjárhagslega, því torisóttari verða þau með vopnum. Hvert árið, sem líð- ux, getur því orðið örlagaríkt. Það er allis ekki ólíklsgt, að stofnað verði til slíkrar styrjaldar, en hitt er meira vafasamt, hvort hún yrði þá annaö en síðustu fjörbrot útlifaðs. skipulags. Sundin lokast. Atvinnuþróun síðustu alda rekur sig á

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.