Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Page 46

Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Page 46
236 Björgunarlaun. IÐUNN gat, sagði Bangsi t'il ])ess að halcla áfrani umræðunum um veðrið og ótta Simba: — 0, maður hefir nú séð hanin svartari en þetta, lagsi, það held ég að miaður hafi ekki lagt það í vana sinn að fara frá línunum i svona gjólu, en það er ekki nema von, að þú yrðir hræddur, þú ert enn þá svo óvanur og kant lítið að sjó- mensku, það er annað en að standa við slátt og svo- Ieiðis dundur, en þetta kemur, bara að vera rólegur og ósmeykur. Bangsia fanst hann mundi geta gert hezta sjómann úr Simba, ef hann bara væri nógu þægur og auðsveipur — einkum', í iandi. En Simbi var í illu skapi, hann stóð upp og ætLaði að staulast frammí, til þess að Iosna við að heyra meira af þessum fyrirlestri Bangsa um sjómensku hans og hræðslu sína, en hann var ekki nóigu rólegur eða stöðugur á fótunum, því um leið og báturinn rann ofan af ölduhrygg, steyptist Sinibi út- byrðis. Um leið og báturinn flaug fram hjá Simba hjó Bangsi annari stóru krumlunni í hálsmál lians og hélt fast, þrátt fyrir átakið, sent báturino gerði. Simbi náði í boröstokkinn og hékk þar hljóðandi. Án þess að sleppa. takinu sneri Bangs-i bátnum upp i vindinn, og eftir mikla fyrirhöfn heppnaðist honum að innbyrða Simba. Bangsi horfðd á Simba, þar sem hann lá yíir þóttuna og spjó sjónum, sem hann hafði drukkið. í huga hans steig upp þögul þakkargerð til guðs fyrir að honum skyldi hafa auðnast að bjarga mannslífi á sjó. Þeir voru færri, form'ennirnir1 í jiorpinu, sem gátu stært sig af því. Hann horfði næstum með lotningu á þessa renn- votu hrúgu, sem engdist á þóttunni og öskraði, þegar saltvatnisgusurnar brutust upp úr kverkunum. Hann var sannfærður um, að nú yrði alt gott aftur. Simbi mundi launa honum vel liigjöfina, og konan hans, hún Júka,

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.