Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Page 95

Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Page 95
ÍÐUNN Bækur. 285 að rabba án þess að verða mjög leiðinlegur og hefir á sér snið hins lagna blaðamanns í framsetningu. Petta er ekki mikið lof, en Guðbrandur á það svo langt sem það nær. Og þó að bókin skilji ekki eftir í huganum skýrar minningar um mikil örlög og magnaðar ástríður, og þó að hún kasti ekki leitarljósum djúpt inn í sálir persónanna, sem þarna er lýst, þá er sú íþrótt ekki að engu metandi að rita eins og fullveðja blaðamaður í þessu landi listabaslsins og rim- sönglsins og hins hátíðlega vesaldóms í bókmentum. Guð- brandur fjallar- um efni sitt eins og víðförull maður um við- ræðuefni, ekki eins og listamaður, sem stjórnast af list- rænni ástríðu. Lesandinn fær hvergi aðkenningar af því að verða hrifinn, en hann hefir heilsusamlega tilfinningu um það, að ekki sé verið að bolast við að gera hann að betra manni. Jónas Jónsson fró Efstabæ. Hestar. Höfundur Theodór Arnbjórnsson frá Ösi. Búnaðarfélag islands, 1931. Þá var þörfu verki hrundið af stað, er Búnaðarfélag is- lands hóf að gefa út búfræðirit sín. Þó kyngt hafi niður ódæma kynstrum af leirburði í bundnu máli og óbundnu, þá hefir verið harla lítið um góðar fræðibækur í hinum hinum ýmsu starfsgreinum manna hér á landi. Svo snauö hefir búfræðin verið af bókum á íslenzku máli, að til skannns tíma hefir orðið að nota bækur á erlendum málum við byrjunarnám í bændaskólunum, þó fæstir nemenda hafi skilið nokkuð til hlítar í þeim málum, sem bækurnar voru prentaðar á. Enda hefir árangurinn af náminu orðið einna líkastur því, sem neinendur hefðu setið allan náms- tímann yfir bókum, sem þeir skildu ekkert orð í. Og svo hefir það verið í raun og veru. — Hestar Th. A. er hin prýðilegasta bók. Rituð á fallegu alþýðlegu máli og prýdd fjölda góðra inynda, sem þó eru ekki á sem lieppilegustum stað í bókinni. Höf. skiftir bókinni í 4 aðalkafla, er heita: Hestakyn, Auðkenni, bygging og gangur, Tamning og notkun, Hús, hirðing og fóðrun. Sennilegt er, að þeir, sem enga bóklega þekkingu hafa-.í þeim fræðum, sem bókin fjallar um, hafi

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.