Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Blaðsíða 37
tÐUNN
Annie Besanl.
291
sambandi við brautryðjanda hennar. Með fám orðum
segi ég. En þetta er heill bókmentaheimur!
Stefnuskrá guðspekifélagsins er þá i þrem greinum
þannig:
1. Að móta kjarna úr allsherjar bræðralagi mannkyns-
ins, án tillits til trúarskoðana, kynferðis, stéttar eða hör-
undslitar.
2. Að hvetja menn til þess að leggja stund á saman-
burð trúarbragðanna, heimspeki og náttúruvísindi.
3. Að rannsaka óskilin náttúrulögmál og sérstaklega
öfl þau og dulda krafta, er leynast með manninum.
Samkvæmt 1. gr. líta guðspekinemar svo á mannkyn-
ið, að það sé alt óslitinn systkinahópur, útstreymi frá guði
sent til jarðlífsins til þess að afla sér reynslu og þroska,
allir séu bræður og systur, börn guðs, sem verði ein-
hverntíma fullkomnir guðir.
Samkvæmt 2. gr. fóru guðspekinemar að bera sam-
an trúarbrögðin. Fundu þeir þá, og auðvitað fleiri en
þeir, að í öllum meiri háttar trúarbrögðum felast sömu
grundvallaratriðin. Þau má telja í fimm greinum.
1. Eilíf, sannveruleg, óskiljanleg vera.
2. Frá henni kemur guð sá, sem birtist á þrennan
hátt.
3. Frá þessum þríeina guði koma hinir vitru andar,
er stjórna heimsskipuninni.
4. Maðurinn er ímynd hins þríeina guðsins og sjálfur
í eðli sínu þríeinn og eilífur.
5. Með lífsreynslu margra endurholdgana verður mað-
urinn að lokum guðdómlegur og hafði guðsneistann
í sér fólginn frá upphafi.
Þannig þykjast guðspekingar sanna, að öll meiri hátt-
ar trúarbrögð séu geislar frá sömu sól. Og einkunnar-