Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Side 80
334
Biblía stjórnmálamanna.
IÐUNN
um visar ófarir. Sé hann aftur á móti sterkur og geti
beitt valdi, tapar hann sjaldan. Því er það, að allir
vopnaðir spámenn vinna en þeir, sem vopnlausir eru,
bíða ósigur. — —
— — Lýðurinn er að náttúrufari hverflyndur. Það
er auðvelt að sannfæra hann, en örðugt að halda hon-
um föstum í rásinni. Bezt er því að koma öllu þannig
fyrir, að þegar sá tími kemur, að múgurinn hættir að
trúa af frjálsum vilja, þá sé hægt að kúga hann til
hollustu. — —
Um réttlæti og siðgæði skrifar Machiavelli:
Látir þú réttlætið ráða athöfnum þínum í öllu, verður
þú troðinn undir af fjöldanum, sem ekki fylgir sömu
meginreglum. Þjóðhöfðingi, sem hefir völd sín kær,
má ekki þræða einstrengingslega braut réttlætisins, nema
sérlega hliðhollar aðstæður leyfi honum það. — —
— — Sértu neyddur til að beitta ó.rétti, þá gerðu
það fljótt og hiklaust, svo múgurinn fái ekki tíma til að
átta sig og hneykslast á beisku bragði rangsleitninnar.
En góðverkin skaltu mæla í smáskömtum, svo fólkið fái
tíma til að finna bragðið að þeim. — —
— — Mjög er það æskilegt, að valdhafinn hafi alla
góða kosti sameinaða. En mannleg náttúra er nú einu
sinni svo, að hún getur hvorki átt allar dygðir né ávalt
fylgt boðum siðgæðisins. Til að bæta þetta upp verður
þú að vera hygginn, og ekki baka þér óorð með þess
konar löstum, sem ræna þig völdunum. Vitanlega er
rétt, að varast einnig aðra lesti, sem ekki eru tign þinni
hættulegir beinlínis. En verði ekki undan þeim komist,
þá er þó minna í húfi. — —
— — Þegar vel er að gáð eru -til eiginleikar, sem
eru í ætt við dygðir en leiða þó beint til glötunar, ef
þú lætur blekkjast af þeim. Og til eru aðrir eiginleikar,