Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1928, Page 32

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1928, Page 32
226 Hneyksliö. IÐUNÍC Gunnfríður, ég elska yður, meira en ég get lýst, meira en ég get valdið, elska yður svo heitt, að mér hefir fundist öll þessi kvöld eins og ég stæði í brennandi elds- logum. Þér hljótið að hafa séð það sjálf. — Og nú get ég ekki meira, — ekki kent yður meira sund, fyr en ég veit eitthvað, fyr en ég veit hvort — —«. Gunnfríður var nú alklædd. Sundfötin hennar lágu rennvot þarna í grasinu. Hún greip til þeirra og vings- aði þeim til, eins og væri hún þess albúin að sletta votu höggi á vanga sundkennarans. En hún stilti sig á flugstiginu, mintist þess skyndilega, hvað hún átti honum að þakka, og þykkjusvipur hennar snerist í sólskin yndisþokkans, og það fór henni betur. / / »Eg á yður mikið að þakka«, sagði hún. »Ég get ekki launað yður það eins og vert er. En ég á þrjár kindur og ég á rauðan hest, bæði fjörugan og fleygi- vakran. Ég vil láta yður fá bæði kindurnar og hestinn, það skuluð þér fá. — Svo á ég kött, gulbröndóttan kött, hann skuluð þér fá líka«. »Nei, kött. — Ég hefi ekki vitundarögn með köttinn að gera — það hefi ég ekki. Og ég vil ekki heldur kindurnar eða hestinn — það vil ég ekki. — Ungfrú. Gunnfríður, ég elska yður«. »]á, það hittist ljómandi vel á, — væri alveg ágætt, á ég við, ef, — ef ég elskaði yður. — En. — Jæja, góða nótt!« »Góða nótt!« — — Tvö árin næstu féll niður sundkenslan í Höfðalaug. Jör- undur sundkennari gaf ekki kost á sér og vegna daufrar framtakssemi hreppsbúa varð ekki af því, að annar væri ráðinn í hans stað. Fáir notuðu því laugina, nema Gunn- fríður, sem »djöflaðist þar alla daga«, eins og ýmsir amalyndir iðjumenn komust að orði. En það orð lagðist
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.