Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1928, Side 85

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1928, Side 85
IDUNN Ástir Jónasar Hallgrímssonar. 279 Jónas bað Þóru hjá föður hennar, en hann var á móti ráðahagnum. Líklega hefir það ráðið miklu um, að Jónas var umkomulítill, fátækur piltur, sem ekki hafði lokið skólanámi. — Síra Gunnar hafði Þóru fyrir ráðskonu. Það er mín skoðun, sem hver getur ráðið hvort hann vill aðhyllast eða ekki, að Jónas hafi ort kvæðið, þegar hann var kominn heim, meðan alt var ferskt og áður en tíminn sallaði nokkru minsta duftkorni yfir endur- minninguna. Frá ástinni fékk hann gáfu sorgarinnar, mundi Henrik Ibsen sagt hafa, og þá varð hann skáld. »Ástarstjarna | yfir Hraundranga | skín á bak við ský« — »hryggur þráir | sveinn í djúpum dali«. Hraundrangarnir eru fyrir ofan Hraun, þar sem Jónas átti heima, og Oxnadalurinn er djúpur. Á Steinsstöðum er kvæðið ort. Það er gullvæg athugasemd við nafnið á kvæðinu aftast í Bókmentafélagsútgáfunni frá 1883, að kvæðið hafi haft þrjú nöfn: Fyrst »Ástin mín« — þá »Gömul saga« og síðast »Ferðalok«. »Ástin mín« hefir það átt að heita í upphafi, og það sýnir að kvæðið er gamalt. Jónas lá á kvæðunum sínum framan af. Hann tekur það aftur upp síðar, eftir að hann hafði fengið ást á annari konu, og kallar það »Gömul saga«, og að síðustu skírir hann það »Ferðalok«. Aldrei sendir hann Þóru Gunnarsdóttur þetta kvæði. Það mun hafa legið hjá honum árum saman og líklega enginn séð það; það var ekki einungis hans leyndarmál, heldur annarar manneskju, og henni skyldi hlífa. Loksins kom það út í »Fjölni«, rétt áður en Jónas Hallgrímsson dó. Kvæðið var lesið upp í veizlu á Norðurlandi, og þegar upplesturinn er búinn, þá er prestskonan — Þóra Gunnarsdóttir — lögðst upp í rúm og er öll böðuð í tárum. Trúnaðarvinir hennar fóru að stumra yfir henni, en hún barmaði sér sáran við þá á laun: »Ef ég hefði
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.