Hlín. - 01.04.1902, Síða 16
6
yfir höfuð. Hlín vill því vinsamlega óska þess, að menn
af öllum stéttum vildu eftirláta sér til birtingar gagnlega
fræðandi stuttar greinar, sem og skýrslur um verklegar
tilraunir og árangur þeirra, af. hvaða tegund sem eru.
Menn munu geta því nærri, að Hlín sé naumlega
fær um, að bjóða fram rífleg ritlaun enn sem komið er,
enda er því þannig farið. En með tímanum vonast hún
eftir að geta boðið sæmilega há ritlaun, ekki síður en
Önnur íslenzk tímarit. Til að byrja með, býður Hlín
þó hér með Kr. 20,00 í ritlaun fyrir örkina af frum-
sömdu máli (að frádreginni borgun fyrir prófarkalestur).
Þó nær þetta tilboð ekki nema til að eins 2—3 arka
af næsta árgangi ritsins, og verður það af aðsendum rit-
gerðum þá látið sitja í fyrirrúmi, sem að áliti útgefanda
er bezt og nytsamast, og jafnframt betra en annað efni,
sem þá er fyrir höndum. Ef höfundar ákveða það, verða
þeim endursendar allar þær ritgerðir, er þeir senda Hlín,
séu þær ekki teknar í ritið.
Með trausti og vinsemd er eg yðar
/ S. B. Jóiisson.
Atli. Tvær prentvillur, sem vart hefir orðið við í þesssu hefti,
skulu hér leiðréttar: þær eru:
Á bls. 45, 10. línu, Kr. 282.50, en á að vera Kr. 382.50.
— — 49, 12. — 23 Cents, — - — — 25 Cents.
Ekki er ugglaust, að engar fleiri prentvillur séu í þessu
hefti, en vonandi að þær séu ekki mjög skaðlegar eða
margar.
Með fjórða hefti ritsins er ætlast til að komi sérprent-
að efnisyfirlit yfir 2 árgangana, ásamt fullnægjandi leið-
réttingum; í því augnamiði að 4 heftin séu innbundin
saman í eina bók.