Hlín. - 01.04.1902, Page 49
39
meiri andlegri og verklegri menning. Meiri þekking,
meiri og einlægari alvöru, meiri og sannari trú, von og
vilja. 3. Að Island er í sjálfu sér vel byggilegt, þrátt
fyrir alla annmarka þess, og það jafnvel með tilliti ti!
Manitoba í Canada. Hafi eg rétt fyrir mér, þá leiðir
af þessari niðurstöðu það, að vér verðum með sjálfráð-
um ásetningi að kjósa um það nú strax, hvort heldur
vér skulum taka oss fram svo verulega að dugi, og
halda áfram að v.era Islendingar, eða þá sjálfrátt eða
ósjálfrátt, nauðugir eða viljugir, láta berast með straumn-
um, þar til er vér höfum ekki lengur ráð á að halda
áfram að vera íslendingar.
Ef íslenzka þjóðin væri nú á því menningárstigi,
sem æskilegt væri, og óhjákvæmilegt er, til þess að
hagnýta fyllilega vel kosti landsins, og byggi þó við
það ástand, sem hér er nú, og vajri landið í sjálfu
sér óbyggilegt og ómögulegt, — eða, ef hún væri að
trú minni svo hæfileikalaus, að hún gæti ekki tekið
sér fram, þá væri eg ekki hér nú, þótt landið væri
enn kostameira að vitund minni en það nú er. — Nei.
-- Það er einmitt trú min á menningarhæfi-
1 e i k a í s 1 e n z k u þ j ó ð a r i n n a r, s e m v e 1 d u r þ v í, a ð
eg er nú hér, samfara trú minni á kostum lands-
ins. — Það er trú mín, að þegar þjóðin vaknar til fulls,
þegar hún að eins vill, og er búin að þurka stýrurnar
úr augunum á sér, að þ á sé hún eins fær um að
t a k a s é r f r a m e i n s o g n o k k u r t a n n a ð f ó 1 k í
öllum heiminum að minnsta kosti.
Sverjum það nú allir sameiginlega, að
dæmi Ameríkumanna, að berjast hraustlega
og drengilega fyrir frelsi, heill og heiðri
f ó stu r 1 a ndsi n s, sem sannir menn og sannir
Islendingar. -— Annars er hætt við að þau forlög
bíði vor, að verða að hœtta að vera Islendingar!