Hlín. - 01.04.1902, Page 63
53
í sig komið. Og þó átu þær stærri minna af því í hlut-
falli við stærð sína en hinar minni.
S. B. Jónsson.
Aths. þýð. Samkvæmt þessu ættu bændur hér
á landi að kappkosta að hafa sem mest af stórum kúm,
og að koma sem mestu ofan í þær er hægt er af ódýr-
ara fóðrinu (útheyinu), en gefa þeim að eins vissan skamt
aí hinu dýrara (töðunni etc.), sem þó má ekki vera of-
lítill, til þess að kýrin geti mjólkað sem bezt, og þó
haldið fullum holdum. — Og er þá gefið að stóru kýrn-
ar eiga að vera nokkuð verðhærri en þær minni í „kaup-
um og sölurn", með því að þær eru í' sjálfu sér verð-
meiri höfuðstóll, bæði til afnytja og frálags, en þær minni,
samkvæmt því sem að framan er sagt.
Markaðsverð.
í ýmsum stöðum á Bretlandi var markaðsverð (sölu-
verð í stórkaupum) í síðastliðnum desembermánuði á
sméri, osti og eggjum, sem hér segir, miðað við danska
v’gt °g peninga:
Danskt og svenskt smér: í London kr. 0.95—
kr. 1.04V2 pundið. í Liverpool kr. 1.04V2—kr. 1.083/4
pundið. í Manchester kr. 1.08V2—kr. 1.08 pundið.
Eyjaálfii-smér: í London, kr. O.84V3,—kr. O.99. I
Livepool kr. l,002/3—kr. 103 pundið. í Bristol kr. O.97V2
—kr. 103 pundið.
Amerískt smér: í Liverpool kr. 0.91—kr. 1 00
pundið. í Manchester sama verð og í Liverpool. í
Grimsby kr. 0.91 —kr. 0.97V4 pundið. í Bristol kr. 0.97V4
—kr. i.oi pundið.