Hlín. - 01.04.1902, Síða 68
58
Um skilvindur.
Að nokkru leyti áður prentað í Þjóðólfi 4/3 og i6/4 1901.
I.
í fyrsta hefti þessa rits (bls. 34—41) eru framsett-
ar nolckrar bendingar um þýðing og eðli skilvindunn-
ar yfir höfuð, og um helztu skilyrðin fyrir því að geta
haft sem beztan árangur af notkun hennar daglega. En
í þetta sinn er meiningin sfi, að reyna að útskýra helztu
skilyrðin fyrir varanlegri og góðri ending skilvind-
unnar, almennt; og að gera grein fyrir gildi hinna ein-
stöku skilvinda, sem hér eru í boði, til samanburðar, að
svo miklu leyti sem föng eru þar til.
Það dugar ekki, þegar um skilvindukaup er að ræða,
að leggja aðaláherzluna á ú tsö 1 u verð þeirra hér heima,
né á það, að andvirði þeirra megi borgast í vörum ept-
ir hentugleikum einhvern tíma, þótt það væri mikilsvert
auðvitað, að öllu öðru jöfnu, að fá þær lánaðar með
sem lægstu verði, ef þess væri kostur. En frá mínu
sjónarmiði er sjálfsagt að leggja aðaláherzluna á
það, að skilvindan sé af vandaðri tegund , sem hafi
mikla viðurkenningu og tiltölulega mikla útbreiðslu í
útlöndum, alstaðar þar sem hún hefur þekzt, og þar
næst á það, að hún sé vitanlega gædd þeim höfuð-
kostum, eða sem flestum þeim hæfileikum, Sem mest
eru áríðandi. — Það, að skilvindan sé ekki mjögódýr
frá fyrstu hendi, er lfklega meira vert, en hitt, að hún.
sé mjög ódýr í útsölu hér heima
Eg þekki enga þá skilvindu, sem ekki sé hægt að
segja að hafi einhvern kost umfram aðra. En spurn-
ingin er ekki um það, heldur hitt, að hún hafi höfuð-